Fræðsla um kynbótadóma
Búgarður – ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi stóð fyrir degi með hrossaræktarráðunaut á Akureyri sl. föstudag. Mikil og góð þátttaka var á þennan viðburð en um 40 manns tóku þátt. Dagskráin hófst kl. 10 og stóð til kl. 17:00.
Byrjað á að fara yfir ýmsa þætti er varða mat á sköpulagi kynbótahrossa. Eftir fyrirlestur og myndasýningu var farið í að byggingardæma sex hross og gátu þátttakendur borið sínar tölur saman við einkunnir ráðunautsins. Að sama skapi var tekin fyrir hæfileikadómur og var hrossunum riðið á kynbótavelli Léttis á Akureyri.
Hópurinn lét ekki kalt veður og einstaka hríðarbylji aftra sér frá því að storma út á kynbótavöll til þess að hæfileikadæma en með sama lagi og fyrr voru hæfileikadómar yfirfarnir að dómum loknum yfir kaffisopa og vínarbrauði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH