Kynbótasýningar Tinni slær heimsmet

  • 3. júní 2026
  • Fréttir

Tinni frá Árdal, sýnandi Árni Björn Pálsson Mynd: Nicki Pfau

Hæst dæmdi fimm vetra stóðhestur frá upphafi.

Dag eftir dag sest blaðamaður Eiðfaxa að lyklaborðinu og segir frá háum dómum á kynbótahrossum og á þessum fína degi er á því enginn breyting.

Tinni frá Árdal varð í dag hæst dæmdi 5.vetra stóðhestur frá upphafi dóma og sló þar með met Dalvars frá Efsta-Seli. Hlaut Tinni 9,01 í aðaleinkunn og er það einungis Viðar frá Skör sem hærri dóm hefur hlotið eða 9,04 í aðaleinkunn.

Hlaut Tinni í einkunn fyrir sköpulag 9,04 og er fyrsta hrossið til að hljóta einkunnina 10,0 fyrir háls, herðar og bóga. Hann hlaut einnig 9,5 fyrir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,98 þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið og greitt stökk. Tinni var sýndur af Árna Birni Pálssyni en ræktendur hans og eigendur eru Henrik Falster-Hansen og Ómar Pétursson. Tinni er undan Kveik frá Stangarlæk og Þrumu frá Árdal.

Allt þetta og meira til er hægt að sjá á EiðfaxaTV þar sem allar kynbótasýningar eru í beinni útsendingu og hægt að horfa þar einnig á þær eftir á.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link