Upprifjunarnámskeið HÍDÍ
Skráning fer nú fram á upprifjunarnámskeið Hestaíþróttadómarafélags Íslands sem fer fram sunnan heiða og norðan í febrúar:
12. febrúar – Reiðhöllin Víðidal kl.10:00-17:00 – síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 8.febrúar
26. febrúar – Svaðastaðahöllin á Sauðárkróki kl.10:00-17:00 – síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 22.febrúar
Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið [email protected]
Námskeiðagjald kr. 15.000 / greiðist á staðnum í peningum, mæting á námskeið telst gild þegar greiðsla hefur borist.
Innifalið í gjaldi: þátttökugjald námskeiðs, félagsgjald HÍDÍ, hádegismatur og kaffi.
Minnum alþjóðadómara á að láta vita ef þeir hafa skráð sig á Alþjóða dómararáðstefnuna.
Dagskrá námskeiðsins kynnt síðar í vikunni.
Viljum einnig minna ykkur dómarar á að koma klædd eftir veðri því við munum dæma úti (ef veðurguðir og aðstæður leyfa),
og taka með ykkur Lög og reglur LH og Leiðarann!
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV