Punktamót hjá Geysi
Fyrirhugað hafði verið hjá hestamannafélaginu Geysi að halda punktamót miðvikudaginn 17. júní en þar sem það rekst á við Íslandsmót fullorðinna og ungmenna hefur verið ákveðið að færa það til sunnudagsins 21. júní.
Mótið verður haldið með fyrirvara um næga þátttöku.
Skráning er í Sportfeng og er opin til kl. 23:59 miðvikudaginn 17. júní.
Keppt verður í tölti T1, 100m skeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Fyrirspurnir sendist á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts