Stórstjarna, Strengur og Glæða efst á Hólum

  • 19. júní 2026
  • Fréttir

Stórstjarna frá Litlu-Brekku, sýnandi Vignir Sigurðsson Mynd: Freydís Bergsdóttir

Kynbótasýningu á Hólum lauk í dag með yfirlitssýningu.

Alls voru það 89 hross sem mættu til sýningarinnar og hlutu 83 þeirra fullnaðardóm og 6 einungis sköpulagsdóm. Dómarar voru þau Þorvaldur Kristjánsson, Guðbjörn Tryggvason og Elsa Mandal Hreggviðsdóttir. Sýning var í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er einnig aðgengileg þar nú.

Þrjú með hæstu aðaleinkunnina

Hæst dæmdu hross sýningarinnar voru Stórstjarna frá Litlu-Brekku, Glæða frá Sauðárkróki og Strengur frá Stóra-Ási. Öll voru þau með 8,49 í aðaleinkunn.

Stórstjarna er fimm vetra og hlaut fyrir sköpulag 8,46 og fyrir hæfileika 8,51, þar af 9,0 fyrir háls,herðar og bóga, fótagerð, tölt og samstarfsvilja. Ræktendur eru Jónína Garðarsdóttir og Vignir Sigurðsson en Vignir sýndi einnig hryssuna. Stórstjarna er undan Kná frá Ytra-Vallholti og Stillu frá Litlu-Brekku

Glæða frá Sauðárkróki hlaut 8,38 fyrir sköpulag og 8.55 fyrir hæfileika, 9,0 fyrir höfuð, bak og lend, greitt stökk og samstarfsvilja. Það var Bjarni Jónasson sem sýndi Glæðu. Glæða er sex vetra undan Kristal frá Sauðárkróki og Grund frá Sauðárkróki en Sauðárkróks-hestar er ræktandi og eigandi.

Strengur frá Stóra-Ási er fimm vetra undan Hannibal frá Þúfum og Sónötu frá Stóra-Ási. Ræktendur og eigendur eru Kolbeinn Magnússon og Lára Kristín Gísladóttir. Strengur hlaut fyrir sköpulag 8,66 og fyrir hæfileika 8,39. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir bak og lend, hægt stökk og fet og 9,0 fyrir hófa, prúðleika, tölt, greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Það var Mette Mannseth sem sýndi hestinn.

9,5 fyrir einstaka eiginleika í hæfileikadómi

Af þeim hrossum sem hlutu 9,5 eða hærra (úrvalseinkunn) fyrir einstaka eiginleika í hæfileikadómi voru þau fjögur talsins.

  • 9,5 fyrir hægt stökk og fet: Strengur frá Stóra-Ási, 5 vetra, undan Hannibal frá Þúfum og Sónötu frá Stóra-Ási. Ræktendur og eigendur Kolbeinn Magnússon og Lára Kristín Gísladóttir.
  • 9,5 fyrir skeið: Hrifning frá Akureyri, 7 vetra undan Kjuða frá Dýrfinnustöðum og Væntingu frá Brúnastöðum. Ræktandi og eigandi Gunnlaugur Atli Sigfússon.
  • 9,5 fyrir fet: Blæja frá Borgargerði, 6 vetra undan Kná frá Ytra-Vallholti og Viðja frá Hvolsvelli. Ræktendur og eigendur Anja Egger-Meier og Islandpferdehof Weierholz.
  • 9,5 fyrir tölt og samstarfsvilja: Glitra frá Sleitustöðum, fimm vetra, undan Ljóma frá Narfastöðum og Gátu frá Dalsmynni. Ræktandi og eigandi Hanna Maria Lindmark.
9,5 fyrir einstaka eiginleika í sköpulagsdómi

Níu hross hlutu 9,5 eða hærra (úrvalseinkunn) fyrir einstaka eiginleika í sköpulagsdómi.

  • 9,5 fyrir bak og lend: Sólbjartur frá Íbishóli, 6 vetra, undan Snillingi frá Íbishóli og Sól frá Sökku. Ræktandi Magnús Bragi Magnússon sem er jafnframt eigandi ásamt Maríu Ósk Ómarsdóttur.
  • 9,5 fyrir bak og lend: Strengur frá Stóra-Ási, 5 vetra, undan Hannibal frá Þúfum og Sónötu frá Stóra-Ási. Ræktendur og eigendur Kolbeinn Magnússon og Lára Kristín Gísladóttir.
  • 9,5 fyrir samræmi: Sigur frá Hlíðarenda, 5 vetra, undan Skarp frá Kýrholti og Eivöru frá Hlíðarenda. Ræktandi og eigandi Erlingur Ingvarson.
  • 9,5 fyrir fótagerð: Reginn frá Hrísaskógum, 4 vetra, undan Skarpi frá Kýrholti og Orku frá Glæsibæ 2. Ræktendur Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir og Valgeir Bjarni Hafdal. Eigandi Mýkt ehf.
  • 9,5 fyrir fótagerð: Steinvör frá Lönguhlíð, 6 vetra, undan Organista frá Horni I og Sædísi frá Stóra-Sandfelli 2. Eigendur Elvar Logi Friðriksson, Gunnhildur Garðarsdóttir og Hallfreður Elísson en Gunnhildur og Hallfreður eru einnig ræktendur.
  • 9,5 fyrir samræmi: Álfanótt frá Prestsbæ, fimm vetra, undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Þóru frá Prestsbæ. Ræktandi Prestsbær ehf sem er einnig eigandi ásamt Hestkletti ehf.
  • 9,5 fyrir háls, herðar og bóga: Myrka frá Þúfum, fimm vetra, undan Hannibal frá Þúfum og Lýsingu frá Þúfum. Ræktendur og eigendur Gísli Gíslason og Mette Mannseth.
  • 9,5 fyrir fótagerð: Ósk frá Hjaltastöðum, fimm vetra, undan Ský frá Skálakoti og Frostrós frá Hjaltastöðum. Ræktendur og eigendur Helga Björg Þórólfsdóttir og Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir.
  • 9,5 fyrir prúðleiki: Fanndís frá Litlu-Brekku, 4 vetra, undan Ský frá Skálakoti og Stjörnusól frá Litlu-Brekku. Ræktandi Jónína Garðarsdóttir og Vignir Sigurðsson. Eigandi Anja Egger-Meier.
Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi Þjálfari
IS2021265007 Stórstjarna frá Litlu-Brekku 8.46 8.51 8.49 Vignir Sigurðsson Vignir Sigurðsson
IS2020257005 Glæða frá Sauðárkróki 8.38 8.55 8.49 Bjarni Jónasson
IS2021135936 Strengur frá Stóra-Ási 8.66 8.39 8.49 Mette Camilla Moe Mannseth Gísli Gíslason
IS2021158523 Náttar frá Hofsstaðaseli 8.36 8.45 8.42 Þórarinn Eymundsson
IS2019265396 Hrifning frá Akureyri 8.12 8.58 8.42 Björg Ingólfsdóttir
IS2022101813 Höfði frá Hestkletti 8.56 8.33 8.41 Þórarinn Eymundsson Anna Linnea Maria Linder Paalsson
IS2021135938 Bragur frá Stóra-Ási 8.47 8.35 8.39 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2021166333 Sigur frá Hlíðarenda 8.54 8.27 8.37 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2020257639 Blæja frá Borgargerði 8.05 8.52 8.36 Bjarni Jónasson
IS2021201940 Von frá Fornalæk 8.19 8.45 8.36 Þórarinn Eymundsson
IS2020256109 Oddvör frá Hofi 8.33 8.35 8.35 Bjarni Jónasson Bjarni Jónasson
IS2019265004 Sif frá Litlu-Brekku 8.35 8.3 8.32 Vignir Sigurðsson Vignir Sigurðsson
IS2020157630 Sólbjartur frá Íbishóli 8.44 8.25 8.32 Magnús Bragi Magnússon Magnús Bragi Magnússon
IS2021252117 Álfanótt frá Prestsbæ 8.79 8.03 8.3 Þórarinn Eymundsson
IS2020265816 Biblía frá Fellshlíð 8.09 8.41 8.3 Vera Evi Schneiderchen
IS2021258170 Nál frá Þúfum 8.46 8.2 8.29 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2021164486 Arfur frá Efri-Rauðalæk 8.29 8.28 8.29 Barbara Wenzl
IS2021155900 Hörður frá Syðri-Völlum 8.39 8.22 8.28 Mette Camilla Moe Mannseth Gísli Gíslason
IS2020257433 Lydía frá Hvammi 8.45 8.18 8.28 Klara Sveinbjörnsdóttir
IS2020166201 Neró frá Torfunesi 7.76 8.55 8.28 Björg Ingólfsdóttir
IS2022258371 Sigurveig frá Dalsmynni 8.26 8.27 8.27 Barbara Wenzl
IS2020276236 Steinvör frá Lönguhlíð 8.69 8.03 8.26 Elvar Logi Friðriksson
IS2019102034 Kolgrímur frá Eydal 8.39 8.18 8.26 Sigrún Rós Helgadóttir Sigrún Rós Helgadóttir
IS2020258705 Völva frá Dýrfinnustöðum 8.34 8.18 8.24 Björg Ingólfsdóttir
IS2021258371 Glitra frá Sleitustöðum 8.11 8.3 8.23 Barbara Wenzl
IS2021258168 Myrkva frá Þúfum 8.68 7.99 8.23 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2020158712 Stormur frá Dýrfinnustöðum 8.14 8.23 8.2 Björg Ingólfsdóttir
IS2020265030 Aldís frá Hofi 8.25 8.16 8.19 Vignir Sigurðsson
IS2022265007 Fanndís frá Litlu-Brekku 8.47 8.04 8.19 Finnbogi Bjarnason
IS2020281843 Svarta-Perla frá Heimahaga 8.1 8.23 8.19 Kristófer Darri Sigurðsson
IS2021265073 Tíbrá frá Jarðbrú 8.13 8.22 8.19 Barbara Wenzl Barbara Wenzl
IS2021258652 Háleit frá Hjarðarhaga 8.57 7.97 8.18 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2022265338 Þota frá Jarðbrú 7.94 8.3 8.18 Barbara Wenzl
IS2021201994 Álfey frá Máney við Skagaströnd 8.31 8.07 8.16 Björg Ingólfsdóttir
IS2020256815 Lygna frá Geitaskarði 8.29 8.06 8.14 Agnar Þór Magnússon
IS2020256465 Jóndís frá Hæli 8.13 8.14 8.14 Bjarni Jónasson
IS2021258720 Ósk frá Hjaltastöðum 8.69 7.84 8.14 Björg Ingólfsdóttir
IS2020287250 Ísbrá frá Sæfelli 7.85 8.28 8.13 Bjarni Jónasson
IS2022265247 Þekking frá Ósi 7.91 8.22 8.11 Agnar Þór Magnússon
IS2019258001 Óskadís frá Ysta-Mó 8.26 8.01 8.1 Guðmar Freyr Magnússon
IS2017284236 Snerpa frá Hólmum 8.24 8.02 8.09 Guðmar Freyr Magnússon
IS2021258880 Vegmey frá Sólheimagerði 8.08 8.07 8.07 Þórarinn Eymundsson
IS2020287084 Óðný frá Völlum 8.27 7.95 8.07 Þórarinn Eymundsson
IS2020257450 Skíma frá Kjartansstaðakoti 8.13 8.03 8.07 Agnar Þór Magnússon
IS2021258592 Lyfting frá Kálfsstöðum 8 8.09 8.06 Barbara Wenzl Barbara Wenzl
IS2021158425 Léttir frá Laufhóli 8.31 7.89 8.04 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2021166331 Strákur frá Hlíðarenda 8.46 7.81 8.04 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2022276251 Unun frá Egilsstöðum 1 8.16 7.95 8.03 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir
IS2020258594 Rós frá Kálfsstöðum 8.26 7.88 8.02 Barbara Wenzl Barbara Wenzl
IS2021157762 Friðmar frá Ísalæk 8.41 7.78 8.01 Julian Veith
IS2020258695 Hending frá Dýrfinnustöðum 8.08 7.96 8 Björg Ingólfsdóttir
IS2022201231 Nína frá Tvennu 7.99 7.99 7.99 Barbara Wenzl
IS2020158431 Skenkur frá Kýrholti 8.33 7.8 7.99 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2021158464 Þór frá Narfastöðum 8.46 7.72 7.98 Ívar Örn Guðjónsson
IS2022157679 Höfðingi frá Íbishóli 8.19 7.85 7.97 Agnar Þór Magnússon
IS2021158318 Sindri frá Skúfsstöðum 8.41 7.71 7.95 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2018166332 Sesar frá Hlíðarenda 8.11 7.86 7.95 Erlingur Ingvarsson
IS2020257153 Djörf frá Hvalnesi 7.87 7.96 7.93 Björg Ingólfsdóttir
IS2021258310 Drótt frá Hólum 8.23 7.77 7.93 Þórarinn Eymundsson
IS2021257003 Sparta frá Sauðárkróki 8.09 7.85 7.93 Mette Camilla Moe Mannseth
IS2020201994 Draumey frá Máney við Skagaströnd 7.84 7.96 7.92 Björg Ingólfsdóttir
IS2021267101 Sæta frá Sandfellshaga 2 8 7.86 7.91 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2022276269 Bláklukka frá Stormi 8.26 7.69 7.89 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir
IS2022287093 Helga frá Vesturkoti 8.03 7.79 7.88 Björg Ingólfsdóttir
IS2021258707 Framtíð frá Dýrfinnustöðum 8.54 7.46 7.84 Björg Ingólfsdóttir
IS2020255247 Skutla frá Breiðabólsstað 7.89 7.77 7.81 Bjarni Jónasson
IS2022276020 Þalía frá Strönd 7.7 7.86 7.81 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir
IS2021158701 Kjarni frá Dýrfinnustöðum 8.41 7.46 7.8 Björg Ingólfsdóttir
IS2021258705 Vakt frá Dýrfinnustöðum 8.22 7.55 7.79 Björg Ingólfsdóttir
IS2022257795 Eygló frá Laugarhvammi 8.54 7.38 7.78 Elvar Logi Friðriksson
IS2022165458 Reginn frá Hrísaskógum 8.49 7.38 7.77 Erlingur Ingvarsson
IS2022257591 Saga frá Ytra-Vallholti 7.95 7.61 7.73 Bjarni Jónasson
IS2020258707 Dagrún frá Dýrfinnustöðum 8.12 7.49 7.71 Ingunn Ingólfsdóttir
IS2020101762 Draumur frá Ísalæk 8.13 7.46 7.7 Julian Veith
IS2021266050 Björt frá Hlíðarenda 8.14 7.43 7.68 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2021265726 Sif frá Akureyri 8.07 7.45 7.67 Eva María Aradóttir Eva María Aradóttir
IS2020265351 Skálm frá Akureyri 7.94 7.46 7.63 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2022257924 Hlíð frá Bjarnastaðahlíð 8.11 7.32 7.6 Guðmar Freyr Magnússon
IS2021266638 Díva frá Hrafnsstöðum 8.07 7.3 7.57 Erlingur Ingvarsson Erlingur Ingvarsson
IS2020201939 Katla frá Fornalæk 8.03 7.32 7.57 Klara Sveinbjörnsdóttir
IS2017257602 Gyðja frá Reykjarhóli 7.79 7.29 7.47 Magnús Bragi Magnússon
IS2021265727 Katla frá Akureyri 7.68 7.31 7.44 Eva María Aradóttir Eva María Aradóttir
IS2020201561 Sjöfn frá Hildingsbergi 7.56 7.29 7.39 Björg Ingólfsdóttir
IS2022235526 Dimmbrá frá Hvanneyri 7.97 Julian Veith
IS2022165654 Eldjárn frá Litla-Garði 8.52 Barbara Wenzl Barbara Wenzl
IS2022158540 Háfeti frá Syðri-Hofdölum 8.24 Björg Ingólfsdóttir
IS2020157153 Kraftur frá Hvalnesi 8.32 Egill Þórir Bjarnason
IS2022101233 Nói frá Tvennu 8.18 Barbara Wenzl
IS2022287251 Veisla frá Sæfelli 8.04 Ívar Örn Guðjónsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link