Frontur frá Finnastöðum efstur inn á mót
Frontur frá Finnastöðum og Jóhanna Margrét Snorradóttir Mynd: Jón Björnsson
Það styttist í að Landsmót hestamanna hefjist á Hólum en keppni hefst á sérstakri forkeppni í barnaflokki á sunnudeginum 5. júlí. Keppni í A flokki gæðinga hefst á þriðjudeginum 7. júlí.
Sigur í A-flokki gæðinga á Landsmóti er einn eftirsóttasti titill sem hægt er að vinna á íslenskum hesti. Alla knapa dreymir um að ná þessum titli sem og öllum ræktendum að hestur þeirra standi efstur alhliða gæðinga á Landsmóti.
Meteinkunn inn á Landsmót
Efstur á stöðulista í A flokki inn á mótið er Frontur frá Finnastöðum og knapi hans Jóhanna Margrét Snorradóttir. Þau keppa fyrir hestamannafélagið Mána og hlutu 9,02 í einkunn sem er ein hæsta einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í A flokki. Frontur er 10 vetra undan Skaganum frá Skipaskaga og Heklu frá Efri-Rauðalæk.
Á eftir honum kemur Leynir frá Garðshorni á Þelamörk, knapi Þorgeir Ólafsson, en Leynir keppir fyrir hestamannafélagið Jökul. Leynir endaði í öðru sæti í A flokki á síðasta Landsmóti. Þriðja í röðinni er Aþena frá Þjóðsólfshaga 1, knapi Teitur Árnason, en þau keppa fyrir hestamannafélagið Geysi.
Fyrrum Landsmótssigurvegari ekki með
Næst í röðinni koma þeir Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 og Seðill frá Árbær en mæta þeir hvorugir á mótið. Knapi á þessum hestum var Árni Björn Pálsson, sem vann A flokkinn á síðasta Landsmóti á Álfamær frá Prestsbæ.
Lazarus og Árni Björn urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi á ný afstöðnu Íslandsmóti og er Lazarus á leið í girðingu að sinna hryssum. Seðill mun ekki mæta mótið þar sem hann er að glíma við meiðsli og er kominn í frí frá þjálfun.
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Landsmót hestamanna verður sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
Stöðulisti í A flokki gæðinga
Hér fyrir neðan er stöðulistinn í A flokki gæðinga, 30 efstu hestar.
| # | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | IS2016164228 Frontur frá Finnastöðum | 9,02 |
| 2 | Þorgeir Ólafsson | IS2015164068 Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 8,98 |
| 3 | Teitur Árnason | IS2017281813 Aþena frá Þjóðólfshaga 1 | 8,92 |
| 4 | Árni Björn Pálsson | IS2017186587 Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 | 8,87 |
| 5 | Árni Björn Pálsson | IS2015186939 Seðill frá Árbæ | 8,82 |
| 6 | Ásmundur Ernir Snorrason | IS2014181118 Askur frá Holtsmúla 1 | 8,81 |
| 7 | Guðmundur Björgvinsson | IS2015181912 Gandi frá Rauðalæk | 8,78 |
| 8 | Hans Þór Hilmarsson | IS2015184872 Sindri frá Hjarðartúni | 8,77 |
| 9 | Fredrica Fagerlund | IS2016155640 Salómon frá Efra-Núpi | 8,71 |
| 10 | Konráð Valur Sveinsson | IS2014164066 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk | 8,70 |
| 11 | Benedikt Ólafsson | IS2015101501 Tobías frá Svarfholti | 8,70 |
| 12 | Snorri Dal | IS2012158338 Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 8,70 |
| 13 | Eygló Arna Guðnadóttir | IS2016184553 Sóli frá Þúfu í Landeyjum | 8,69 |
| 14 | Sigurbjörn Bárðarson | IS2008186651 Nagli frá Flagbjarnarholti | 8,69 |
| 15 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | IS2012164070 Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk | 8,69 |
| 16 | Björg Ingólfsdóttir | IS2013158707 Kjuði frá Dýrfinnustöðum | 8,68 |
| 17 | Viðar Ingólfsson | IS2017182466 Rúrik frá Halakoti | 8,68 |
| 18 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | IS2019187051 Hergeir frá Auðsholtshjáleigu | 8,68 |
| 19 | Viðar Ingólfsson | IS2019282745 Hraundís frá Selfossi | 8,67 |
| 20 | Bergrún Ingólfsdóttir | IS2010181398 Roði frá Lyngholti | 8,67 |
| 21 | Helga Una Björnsdóttir | IS2017281420 Hildur frá Fákshólum | 8,66 |
| 22 | Axel Ásbergsson | IS2018238376 María frá Vatni | 8,66 |
| 23 | Jakob Svavar Sigurðsson | IS2011137210 Goði frá Bjarnarhöfn | 8,66 |
| 24 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | IS2018101004 Kjarni frá Korpu | 8,66 |
| 25 | Þórarinn Ragnarsson | IS2019287819 Rún frá Vesturkoti | 8,66 |
| 26 | Þórey Þula Helgadóttir | IS2016188372 Kjalar frá Hvammi I | 8,65 |
| 27 | Auðunn Kristjánsson | IS2018135608 Orfeus frá Efri-Hrepp | 8,64 |
| 28 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | IS2018184438 Kraftur frá Svanavatni | 8,63 |
| 29 | Mette Mannseth | IS2019158168 Strengur frá Þúfum | 8,63 |
| 30 | Auðunn Kristjánsson | IS2006186178 Penni frá Eystra-Fróðholti | 8,62 |
| 31 | Guðmundur Björgvinsson | IS2019184171 Spaði frá Fornusöndum | 8,62 |
Frontur frá Finnastöðum efstur inn á mót
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Tinni slær heimsmet