Nýtt kynbótamat

  • 26. júní 2026
  • Fréttir

Þráinn frá Flagbjarnarholti stendur efstur til heiðursverðlauna á Landsmóti á Hólum samkvæmt nýju kynbótamati

Nýtt kynbótamat var reiknað í morgun

Nýtt kynbótamat var reiknað fyrir íslenska hestinn í morgun og var það birt nú síðdegis í WorldFeng. Þegar Landsmót er haldið er nýtt kynbótamat iðulega reiknað að loknum vordómum á Íslandi til að hafa nýjar niðurstöður til að byggja röðun afkvæmahesta á.

Alls bættust við frá vorinu 1.795 dómar frá sex löndum. Kynbótamatið byggir nú á tæplega 40.000 fullnaðardómum úr kynbótadómi og rúmlega 172.000 keppnisdómum. Það er því ljóst að árlega bætast við verðmætar upplýsingar sem styrkja grunn kynbótamatsins.

Hvað stóðhestana varðar eiga nú þátttökurétt í afkvæmasýningum á Landsmóti á Hólum tólf hestar; þrír til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi og níu til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi. Þeir eru:

Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi:
 Þráinn frá Flagbjarnarholti
 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
 Hreyfill frá Vorsabæ II

Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi:
 Hannibal frá Þúfum
 Skarpur frá Kýrholti
 Veigar frá Skipaskaga
 Pensill frá Hvolsvelli
 Kjuði frá Dýrfinnustöðum
 Útherji frá Blesastöðum 1A
 Rauðskeggur frá Kjarnholtum I
 Safír frá Mosfellsbæ
 Vökull frá Efri-Brú

Ræktendum og eigendum hestanna er óskað innilega til hamingju með frábæran árangur og merkan áfanga.

Haft verður samband við eigendur hestanna á næstu dögum til að skipuleggja afkvæmasýningar hestanna á Landsmóti.

Þorvaldur Kristjánsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link