Eik efst á stöðulist í ungmennaflokki

  • 30. júní 2026
  • Fréttir
Fjórir dagar í að Landsmót hestamanna hefjist á Hólum.

Það er gaman að velta fyrir sér stöðulistum inná mótið og næsti flokkur sem við kíkjum á er ungmennaflokkur. Ungmennin ríða í braut á mánudagsmorgni en 98 knapar eru skráðir í ungmennaflokk á Landsmóti, sem er örlítil aukning frá síðasta móti. Það er nýjung í ár að keppt verður í A flokki ungmenna sem er ein af tveimur sýningargreinum mótsins.

Ungmennaflokkurinn lofar góðu fyrir Landsmót

Efst á stöðulista í ungmennaflokki er Eik Elvarsdóttir á Val frá Stangarlæk 1. Þau eru að keppa fyrir hestamannafélagið Geysi. Þetta er fyrsta árið í ungmennaflokki en þau voru í öðru sæti í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga í fyrra en þá var boðið upp á keppni í gæðingakeppni.

Önnur í röðinni er Guðný Dís Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ en þau keppa fyrir hestamannafélagið Sprett. Þetta er annað keppnistímabil þeirra saman. Hekla Rán Hannesdóttir er þriðja í röðinni á Tind frá Árdal en þau keppa einnig fyrir Sprett.

Ríkjandi Landsmótssigurvegari mætir til leiks

Matthías Sigurðsson og Tumi frá Jarðbrú eru skráðir til leiks en þeir unnu ungmennaflokkinn á síðasta Landsmóti eftir að hafa komið upp úr B úrslitum. Þeir keppa fyrir hestamannafélagið Fák.

Fyrsta sinn A flokkur ungmenna á Landsmóti

Eins og áður hefur komið fram verður í fyrsta sinn boðið upp á A flokk ungmenna á Landsmóti og er greinin sýningargrein. 52 keppendur eru skráðir í A flokk ungmenna.

Kristín Eir Haukdsóttir Holaker og Abel frá Skáney eru efst á stöðulista í A flokki ungmenna. Rétt á eftir þeim er Auður Karen Auðbjörnsdóttir á Sturlu frá Bræðratungu og Jón Ársæll Bergmann á Kjarval frá Skíðbakka III.

Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV

Landsmót hestamanna verður sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.

Stöðulisti í B flokki ungmenna

Hér fyrir neðan er stöðulistinn í B flokk ungmenna, 30 efstu hestar.

1 Eik Elvarsdóttir IS2018188096 Valur frá Stangarlæk 1 8,75
2 Guðný Dís Jónsdóttir IS2016125400 Goði frá Garðabæ 8,71
3 Hekla Rán Hannesdóttir IS2017135591 Tindur frá Árdal 8,69
4 Ída Mekkín Hlynsdóttir IS2010277156 Marín frá Lækjarbrekku 2 8,68
5 Anika Hrund Ómarsdóttir IS2018184669 Dáðhugi frá Álfhólum 8,67
6 Jón Ársæll Bergmann IS2018157338 Viskusteinn frá Íbishóli 8,66
7 Snæfríður Ásta Jónasdóttir IS2014184743 Stimpill frá Strandarhöfði 8,65
8 Fanndís Helgadóttir IS2018182575 Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum 8,64
9 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal IS2016158306 Grettir frá Hólum 8,64
10 Lilja Rún Sigurjónsdóttir IS2015101554 Draupnir frá Dimmuborg 8,63
11 Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir IS2015155572 Garri frá Bessastöðum 8,63
12 Kolbrún Sif Sindradóttir IS2013187251 Toppur frá Sæfelli 8,60
13 Kolbrún Sif Sindradóttir IS2017184997 Höfðingi frá Miðhúsum 8,59
14 Hekla Rán Hannesdóttir IS2017157802 Dimmir frá Varmalæk 8,59
15 Matthías Sigurðsson IS2014165338 Tumi frá Jarðbrú 8,59
16 Elva Rún Jónsdóttir IS2019286902 Björt frá Feti 8,59
17 Auður Karen Auðbjörnsdóttir IS2018265699 Ósk frá Akureyri 8,57
18 Eva Kærnested IS2012181830 Styrkur frá Skák 8,55
19 Ragnar Snær Viðarsson IS2019101178 Hinrik frá Hásæti 8,55
20 Sigurður Steingrímsson IS2018280378 Rún frá Koltursey 8,55
21 Herdís Björg Jóhannsdóttir IS2016188690 Þór frá Efri-Brú 8,55
22 Helgi Freyr Haraldsson IS2014180616 Hrynjandi frá Strönd II 8,54
23 Ingunn Rán Sigurðardóttir IS2019281516 Svört frá Einhamri 8,54
24 Snæfríður Ásta Jónasdóttir IS2018184744 Feykir frá Strandarhöfði 8,54
25 Sigurbjörg Helgadóttir IS2018182866 Skuggabaldur frá Stórhólma 8,53
26 Lilja Rún Sigurjónsdóttir IS2019265300 Spenna frá Skriðu 8,53
27 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir IS2018225095 Kolgríma frá Morastöðum 8,53
28 Hildur María Jóhannesdóttir IS2016136520 Hervar frá Svignaskarði 8,52
29 Hulda Ingadóttir IS2013180469 Bliki frá Eystri-Hól 8,52
30 Þórgunnur Þórarinsdóttir IS2018201810 Hetja frá Hestkletti 8,51
31 Bjarndís Rut Ragnarsdóttir IS2013180603 Tenór frá Hemlu II 8,51

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link