Peningaverðlaun á Hestaþingi Kóps og Sindra

  • 30. júní 2026
  • Tilkynning
Peningaverðlaun fyrir efsta sæti í tölti

Hestaþing Kóps og Sindra verður haldið á Sindravelli við Pétursey 18.júlí

Það verða peningaverðlaun fyrir 1. sæti í T3 Stjörnublikkstöltinu og verðlaun fyrir 1 sætið í T7 er folatollur undir Kór frá Skálakoti. Svo það er til mikils að vinna á sameiginlegu hestaþingi hestamannafélaganna Kóps og Sindra sem haldið verður laugardaginn 18.júlí á Sindravelli við Pétursey.

Skráning er opin frá 1.júlí og stendur til kl 23.59 þriðjudaginn 14.júlí.

Mótið er opið og verður keppt í eftirfarandi flokkum. Polla-, barna-, unglinga-,ungmennaflokki-, A, B og C flokki gæðinga. Stjörnublikkstöltið T3, Skálakotstöltið T7 og 100 m flugskeiði.

Skráningargjöld í ungmennaflokk, A-, B- og C flokki er kr. 7000.-

Í barna og unglinga 3000,-

Í tölti T3 og T7 er skráningargjaldið 7000.-

Þeir sem skrá sig eftir að skráningu líkur þriðjudaginn 14.júlí þurfa að borga 5000.- meira fyrir hverja skráningu.

Engin skráningargjöld eru í pollaflokk.

Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist og staðfesting á henni á tölvupóstfangið hmf.kopur@gmail.com . Skráning er á www.sportfengur.com. Afskráningar berist á netfangið hmf.kopur@gmail.com eða símleiðis til Sanne s. 8552138.

Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Kristínu Lár í síma 8980825

Dagskrá og ráslistar verða birtir á Horsedayappinu eftir að skráningu lýkur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link