Landsmót „Lífsins lukka að eignast hana“

  • 6. júlí 2026
  • Fréttir

Fylking frá Austurási, sýnandi Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Mynd: Þórhildur Gunnarsdóttir

Viðtal við eigendur Óperu frá Nýjabæ sem á þrjár dætur í kynbótasýningu.

Ópera frá Nýjabæ er móðir þriggja hryssna sem sýndar eru á kynbótasýningunni á Landsmóti. Í elsta flokki hryssna er það Fylking frá Austurási með 8,42 í aðaleinkunn, í sex vetra flokki Garún frá Austurási með 8,45 í aðaleinkunn og í fimm vetra flokki Melódíu frá Austurási með 8,39 í aðaleinkunn en allar eiga þær eftir að vera sýndar á yfirliti.

Fengu hana sem greiðslu upp í hesthús

Haukur Baldvinsson og Ragnhildur Loftsdóttir eru eigendur Óperu sem eru orðin 25 vetra og hefur reynst þeim afar vel í ræktun. Ópera hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2024. Hún á orðið 17 afkvæmi, níu eru sýnd og öll með fyrstu verðlaun.

„Þetta er algjörlega einstök hryssa og hefur reynst okkur frábærlega í alla staði. Það var lífsins lukka að eignast hana Óperu, hún hefur gefið okkur frábæra gæðinga og dætur hennar eru líka farnar að gefa,“ segir Haukur Baldvinsson en þau Ragnhildur og Haukur eignuðust Óperu árið 2008.

„Við seldum hesthús sem við áttum á Selfossi og fengum helminginn af Óperu upp í fyrir hesthúsið. Nokkrum árum seinna við síðan hinn helminginn í henni og vorum næstum búin að selja hana eftir það en sem betur fer gerðum við það ekki. Því hún er búin að launa okkur það alla tíð síðan“

Léttleiki og jákvæðni

Meðal annarra afkvæma Óperu eru Vikar frá Austurási sem vann töltkeppni Meistaradeildarinnar í vetur ásamt knapa sínum Glódís Rún Sigurðardóttir og Flís frá Austurási sem hefur gefið þrjú fyrstu verðlauna afkvæmi.

„Það sem einkennir afkvæmi hennar er léttleiki og fínleg heit. Þau eru með fallegt höfuð, góðan háls og einstaklega góða baklínu. Þau er líka frábær í reið, kát, jákvæð og skemmtileg hross,“ segir Ragnhildur

Auka fóta- og framhæð

Þær systur sem eru sýndar hér á Landsmótinu eru tvær alsystur undan Draupni frá Stuðlum og sú þriðja er undan Útherja frá Blesastöðum 1A. Hverju eru þau Haukur og Ragnhildur að leitast eftir þegar þau velja stóðhest á Óperu?

„Við erum endalaust að reyna stækka og auka fóta- og framhæð í hrossunum okkar. Þó hún sé að gefa okkur það þá reynum við að finna hest sem eru líka að skila þeim eiginleikum. Hljómar eins og klisja en það henta henni ótrúlega margir hestar virðist vera. Við erum bara ógeðslega ánægð með hana Óperu okkar og svo erum við sérstaklega ánægð að Loftur Breki sonur okkar getur nýtt afkvæmi undan henni í keppni en hann hefur verið að keppa á Fylkingu í unglingaflokki með mjög góðum árangri.“

Gulls í gildi að eignast góða hryssu

Ekki er búið að staðfesta fyl í Óperu en henni var haldið undir Víking frá Hofi og vonast þau eftir að fá afkvæmi undan þeim næsta sumar.

„Að eignast svona hryssu, maður skilur það núna, þegar það var oft verið að segja það við mann í gamla daga að eignast góða hryssu væri gulls í gildi. Það er bara þannig og algjör lukka að hitta á góðar merar í ræktun.“

Ópera er ein af örfáum hryssum sem eiga þrjú afkvæmi á mótinu en auk hennar eiga þær Elja frá Ytri-Hofdölum, Dýrð frá Hafnarfirði, Hrund frá Hvammi og Rás frá Ragnheiðarstöðum þrjú afkvæmi í keppnishluta mótsins.

Dómar þeirra Fylkingu, Garúnar og Melódíu

IS2019287571 Fylking frá Austurási
Örmerki: 352098100092240
Litur: 45200 Leirljós stjörnóttur
Ræktandi: Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir
Eigandi: Austurás hestar ehf., Páll Stefánsson
F.: IS2011187105 Draupnir frá Stuðlum
Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Fm.: IS1996287667 Þerna frá Arnarhóli
M.: IS2001287613 Ópera frá Nýjabæ
Mf.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Mm.: IS1988287613 Fiðla frá Nýjabæ
Mál (cm): 145 – 133 – 138 – 65 – 142 – 37 – 48 – 44 – 6,4 – 27,5 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,8
Sköpulag: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,54
Hæfileikar: 9,5 – 8,5 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 7,5 = 8,35
Hægt tölt: 9,0

Aðaleinkunn: 8,42
Hæfileikar án skeiðs: 8,96
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,81
Sýnandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Þjálfari: Loftur Breki Hauksson

IS2020287571 Garún frá Austurási
Örmerki: 352098100101517
Litur: 15500 Rauður blesóttur
Ræktandi: Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir
Eigandi: Austurás hestar ehf.
F.: IS2014187804 Útherji frá Blesastöðum 1A
Ff.: IS2007186651 Framherji frá Flagbjarnarholti
Fm.: IS1993287924 Blúnda frá Kílhrauni
M.: IS2001287613 Ópera frá Nýjabæ
Mf.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Mm.: IS1988287613 Fiðla frá Nýjabæ
Mál (cm): 141 – 129 – 133 – 63 – 137 – 37 – 49 – 46 – 6,2 – 27,5 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 8,6 – V.a.: 8,6
Sköpulag: 9,5 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,75
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 9,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,28
Hægt tölt: 8,5

Aðaleinkunn: 8,45
Hæfileikar án skeiðs: 8,88
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,84
Sýnandi: Teitur Árnason
Þjálfari:

IS2021287571 Melódía frá Austurási
Örmerki: 352098100112836
Litur: 12510 Ljósrauður blesóttur glófextur
Ræktandi: Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir
Eigandi: Austurás hestar ehf., Ásta Björnsdóttir
F.: IS2011187105 Draupnir frá Stuðlum
Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Fm.: IS1996287667 Þerna frá Arnarhóli
M.: IS2001287613 Ópera frá Nýjabæ
Mf.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Mm.: IS1988287613 Fiðla frá Nýjabæ
Mál (cm): 145 – 131 – 135 – 65 – 137 – 35 – 48 – 42 – 6,0 – 27,0 – 17,0
Hófa mál: V.fr.: 8,7 – V.a.: 8,4
Sköpulag: 9,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 = 8,66
Hæfileikar: 9,0 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,0 = 8,24
Hægt tölt: 9,0

Aðaleinkunn: 8,39
Hæfileikar án skeiðs: 8,37
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,47
Sýnandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Þjálfari:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link