Landsmót Bestu tímar kvöldsins

  • 8. júlí 2026
  • Fréttir

Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II. Mynd Freydís Bergsdóttir

Fyrri umferð kappreiða lokið.

Fyrri umferð í 250 m. og 150 m. skeiði fór fram í kvöld. Það voru ekki margir sprettirnir sem farnir voru á skeiði. Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II voru með besta tímann í 150 m. skeiðinu eða 13,84 sek. Sigurbjörn Bárðarson og Vökull frá Tunguhálsi II voru með næst besta tímann 14,13 sek og þar á eftir kom Sigurður Vignir Matthíasson og Tryggur frá Selfossi með tímann 14,30 sek.

Guðrún Lilja Rúnarsdóttir og Kári frá Morastöðum. Mynd Freydís Bergsdóttir

Guðrún Lilja Rúnarsdóttir og Kári frá Morastöðum voru með besta tímann í 250 m. skeiðinu eða 22,86 sek. Hreinn Haukur Pálsson og Tvistur frá Garðshorni kom þar á eftir á 23,23 sek. og þriðja besta tímann, 23,41 sek, átti Daníel Gunnarsson og Drottning frá Þóroddsstöðum.

Seinni umferðin fer fram á fimmtudag klukkan 17:22.

Niðurstöður fyrri umferð

250 m. skeið

Sæti Knapi Hross Tími
1 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 22,86
2 Hreinn Haukur Pálsson Tvistur frá Garðshorni 23,23
3 Daniel Gunnarsson Drottning frá Þóroddsstöðum 23,41
4 Hans Þór Hilmarsson Frigg frá Jöklu 23,82
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 25,00
6 Unnur Rún Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 25,14
7-13 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 0,00
7-13 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 0,00
7-13 Konráð Valur Sveinsson Kvistur frá Kommu 0,00
7-13 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 0,00
7-13 Daniel Gunnarsson Sigur frá Bessastöðum 0,00
7-13 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 0,00
7-13 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti 0,00

150 m. skeið

Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 13,84
2 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 14,13
3 Sigurður Vignir Matthíasson Tryggur frá Selfossi 14,30
4 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 14,60
5 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk 14,71
6 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 14,76
7 Helgi Gíslason Hörpurós frá Helgatúni 14,89
8 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 15,01
9 Bjarki Fannar Stefánsson Otra frá Fornhaga II 15,34
10-17 Daniel Gunnarsson Elding frá Hofsstaðaseli 0,00
10-17 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum 0,00
10-17 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 0,00
10-17 Matthías Sigurðsson Þrymur frá Bergholti 0,00
10-17 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 0,00
10-17 Þorsteinn Björnsson Hrina frá Hólum 0,00
10-17 Teitur Árnason Hátíð frá Sumarliðabæ 2 0,00
10-17 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link