Auglýst eftir framkvæmdastjóra Spretts

  • 18. nóvember 2013
  • Fréttir
Umsóknum skal skilað inn fyrir 1. desember

Hestamannafélagið Sprettur, sem er sameinað félag hestamanna í Garðabæ og Kópavogi með aðstöðu á Kjóavöllum, auglýsir eftir framkvæmdastjóra. Um er að ræða 50% starf og er reiknað með að viðkomandi geti hafið störf um næstu áramót. Starfið felst m.a. í markaðssetningu og útleigu á fasteignum félagsins, færslu bókhalds, fjármálastjórn og öðru sem viðkemur rekstri þess.

Ekki er gerð krafa til þess að viðkomandi sé hestamaður.

Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected]eigi síðar en 01.12.2013. Sé óskað frekari upplýsinga um starfið má beina þeim spurningum á sama netfang. Þá er bent á heimasíðu félagsins, sprettarar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link