Bjórkvöld Fáks að lokinni Stórsýningu

  • 28. apríl 2011
  • Fréttir
Bjórkvöld Fáks að lokinni Stórsýningu

Stórsýning Fáks fer fram á laugardagskvöld kl. 21 í reiðhöllinni í Víðidal, en að henna lokinni mun Fákur efna til bjórkvölds í félagsheimilinu.

„Að venju er hið skemmtilega bjórkvöld Fáks í félagsheimilinu eftir Stórsýninguna á laugardagskvöldið. Seiðandi diskó, fljótandi veitingar er ávísun á stórskemmtileg kvöld með skemmtilegum hestamönnum, að vísu misfríðum en skemmtilegum.

Stórsýningin byrjar kl. 21.00 og kostar kr. 2.000 inn. Frítt verður inn á Bjórkvöldið en sýningargestir ganga fyrir þar sem það stefnir í mikinn fjölda hestamanna sem ætlar að skemmta sér þetta kvöld.

 Flottir hestar, bjór og  hestamenn er ávísun á skemmtilegt kvöld í Víðidalnum. Allir skemmtilegir hestamenn mæta – hvar verður þú?“ segir í tilkynningu frá Fáki.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link