Landbúnaðarháskóli Íslands Nýtt frumtamninganámskeið í Reiðmanninum

  • 14. júlí 2026
  • Tilkynning
Boðið verður upp á nýtt nám í Reiðmanninum í haust en það er frumtamninganám.

Námið er hagnýtt átta vikna lotunám fyrir hestafólk sem vill fá meiri þjálfun og reynslu í tamningum unghrossa.

„Á námskeiðinu vinna nemendur markvisst með eigið unghross undir leiðsögn reyndra reiðkennara og tamningamanna. Verkleg kennsla, heimavinna og regluleg eftirfylgni á Teams mynda samfellda heild þar sem þú færð stuðning í gegnum allt ferlið,“ segir í námslýsingu.

Áhersla er lögð á:

  • Traust, ró og örugg samskipti
  • Grunnvinnu og hringteymingu
  • Að lesa viðbrögð hestsins
  • Undirbúning fyrir fyrstu skref undir knapa
  • Grunnábendingar: Áfram, stopp og stefnubreytingar
  • Fyrstu reiðtúra utandyra ef hesturinn er tilbúinn
  • Einstaklingsmiðaða framvindu án þess að flýta ferlinu

Námið hentar bæði þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í tamningum og þeim sem hafa einhverja reynslu en vilja bæta við sig þekkingu, öryggi og markvissari vinnubrögðum.

Kennslustaðir og kennarar:
– Hestamannafélagið Sprettur í Kópavogi
Kennari: Henna Siren
– Vesturkot í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Kennari: Þórarinn Ragnarsson

Námið er metið til 4 fein og er ætlað þátttakendum 18 ára og eldri.

Námsfyrirkomulag:

  • 12 verklegar kennslustundir
  • 3 leiðsagna- og stuðningstímar á Teams milli verklegra tíma
  • Sjálfstæð og markviss vinna milli kennslutíma
  • 1 fræðsluerindi á Teams um atferli hrossa
  • Þátttaka í Fræðsludegi Reiðmannsins

Skráningarfrestur er til 31. ágúst. Skráningar og nánari upplýsingar: HÉR
Verð: 135.000 kr.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link