Skráning á síðsumarssýningar opnar 20. júlí
Að þessu sinni verður boðið upp á þrjár sýningar, eina á Hólum og tvær á Rangárbökkum. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar.
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.
RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Hér að neðan má sjá hvenær eru síðustu skráningardagar.
| Dags. | Staður | Lokaskráningardagur |
| 10. – 13. ágúst | Rangárbakkar við Hellu | Þriðjudagur 4. ágúst |
| 17. – 21. ágúst | Rangárbakkar við Hellu | Þriðjudagur 4. ágúst |
| 17. – 21. ágúst | Hólar í Hjaltadal | Þriðjudagur 4. ágúst |
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
Skráning á síðsumarssýningar opnar 20. júlí
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Hæst dæmdi hestur í heimi
Nýtt frumtamninganámskeið í Reiðmanninum