Stórskemmtileg uppskeruhátíð Þyts
Hestamannafélagið Þytur á Hvammstanga (Húnaþing Vestra) hélt sína árlegu uppskeruhátíð á laugardaginn…
Á laugardeginum var uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar Þyts haldin í félagsheimilinu Ásbyrgi kl. 13.00. Þar voru meðal annars veitt knapaverðlaun ársins og var það hún Sigrún Kristín Þórðardóttir sem veitti viðurkenningar fyrir knapa ársins. Knapi ársins 2010 í barnaflokki er Viktor Jóhannes Kristófersson en Knapi ársins í unglingaflokki er Fríða Marý Halldórsdóttir.
Um kvöldið var uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur Húnavatnssýslu og Þyts haldin í félagsheimilinu á Hvammstanga. Kvöldið fór rólega og yfirvegað af stað og veittar voru hinar ýmsu viðurkenningar. Knapi ársins í ungmennaflokki er Ninni Kullberg, knapi ársins í 2. flokki er Gréta Brimrún Karlsdóttir og knapi ársins í 1. flokki er Tryggvi Björnsson
Ræktunarbú ársins 2010 er GRAFARKOT
Hæst dæmda hryssan var Skinna frá Grafarkoti með aðaleink. 8,28 og
Hæst dæmdi stóðhesturinn var Sikill frá Sigmundarstöðum með aðaleink 8,30.
Hér að neðan má svo finna upplýsingar um þau hross sem hlutu viðurkenningar í sínum flokkum á hátíðinni og þar má meðal annars finna hana Sýn frá Grafarkoti sem er hæst dæmda 4 vetra hryssan yfir landið árið 2010.
En að verðlaunaafhendingu lokinni tók skemmtinefnd félagsins til starfa og óhætt er að segja að Þytsfélagar eru alveg óhræddir við að gera grín að sjálfum sér og öðrum því að skemmtiatriðin eru með þeim betri sem að greinarhöfundur hefur orðið vitni af. Alveg hreint ótrúlega skemmtilegt og öflugt félagslíf í ekki stærra hestamannafélagi.
Hryssur 4 vetra:
1. Sýn frá Grafarkoti, aðaleink. 8,12 Sýn er hæst dæmda hryssan á landinu á árinu 2010
2. Sæla frá Þóreyjarnúpi, aðaleink. 8,07
3. Unun frá Vatnshömrum, aðaleink. 7,93
Hryssur 5. vetra:
1. Birta frá Sauðadalsá, aðaleink. 8,16
2. Kara frá Grafarkoti, aðaleink. 8,06
3. Bylting frá Bessastöðum, aðaleink. 8,00
Hryssur 6. vetra:
1. Brimkló frá Efri-Fitjum, aðaleink. 8,15
2. Fregn frá Vatnshömrum, aðaleink. 8,09
3. Hugsýn frá Þóreyjarnúpi, aðaleink. 8,07
Hryssur 7. vetra og eldri:
1. Skinna frá Grafarkoti, aðaleink. 8,28
2. Brimrún frá Efri-Fitjum, aðaleink. 8,17
3. Valadís frá Síðu, aðaleink. 8,03
Stóðhestar 4. vetra:
1. Eldfari frá Stóru-Ásgeirsá, aðaleink. 8,11
2. Eitill frá Stóru-Ásgeirsá, aðaleink. 7,91
3. Lykill frá Syðri-Völlum, aðaleink. 7,78
Stóðhestar 5. vetra
1. Rammur frá Höfðabakka, aðaleink. 7,87
Stóðhestar 6. vetra
1. Friður frá Miðhópi, aðaleink. 8,21
2. Kaleikur frá Grafarkoti, aðaleink. 8,03
3. Erfingi frá Grafarkoti, aðaleink. 7,92
Stóðhestar 7. vetra og eldri
1. Sikill frá Sigmundarstöðum, aðaleink. 8,30
2. Hugleikur frá Galtanesi, aðaleink. 8,19
3. Ábóti frá Síðu, aðaleink. 7,91
Hryssur með afkvæmum
1. Venus frá Sigmundarstöðum með 114 stig í kynbótamati
2. Brá frá Sigmundarstöðum með 114 stig í kynbótamati
Hér neðantil eru myndir af stemningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH