Sigurey og Emma taka þátt í A-úrslitum í gæðingatölti
Keppendur í b-úrslitum í gæðingatölti í barnaflokki í verðlaunaafhendingu. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Í dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.
B-úrslit í gæðingatölti fóru fram fyrr í dag þar sem Sigurey María Eyjalínardóttir á Jörp frá Kjarri stóð efst með einkunnina 8,61 og ríður því til A-úrslita á morgun. Í unglingaflokki var það Emma Rún Sigurðardóttir á Valíanti frá Efra-Langholti sem lék þann sama leik með 8,71.
Niðurstaða B-úrslita í gæðingatölti barna
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Jörp frá Kjarri | 8,61 |
| 9 | Jón Guðmundsson / Rós frá Blönduósi | 8,59 |
| 10-11 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Rafn frá Melabergi | 8,57 |
| 10-11 | Sunna María Játvarðsdóttir / Alfa frá Margrétarhofi | 8,57 |
| 12 | Dagur Snær Agnarsson / Barón frá Hafnarfirði | 8,54 |
| 13 | Helgi Hrafn Sigvaldason / Fagur frá Kvistum | 8,54 |
| 14 | Vilhelm Bjartur Eiríksson / Blesi frá Heysholti | 8,53 |
| 15 | Embla Sirén Matthíasdóttir / Gróði frá Naustum | 8,51 |
Niðurstaða B-úrslita í gæðingatölti unglinga
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Emma Rún Sigurðardóttir / Valíant frá Efra-Langholti | 8,71 |
| 9 | Anna Sigríður Erlendsdóttir / Hlynur frá Árbæjarhjáleigu II | 8,59 |
| 10 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Bjartur frá Hlemmiskeiði 3 | 8,58 |
| 11-12 | Karólína Ævarr Skúladóttir / Litli brúnn frá Eyrarbakka | 8,54 |
| 11-12 | Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir / Heiða frá Skúmsstöðum | 8,54 |
| 13 | Viktor Leifsson / Glaður frá Mykjunesi 2 | 8,47 |
| 14 | Tristan Dagur Þórisson / Garún frá Þjóðólfshaga 1 | 8,46 |
| 15 | Aron Dyröy Guðmundsson / Sunna frá Rauðalæk | 8,42 |
Hæst dæmdi hestur í heimi