Arnoddur sigrar flokk 6 vetra stóðhesta-

  • 6. ágúst 2011
  • Fréttir
Arnoddur sigrar flokk 6 vetra stóðhesta-

Fimmta gullið er í höfn. Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu er sigurvegari í flokki 6 vetra stóðhesta á HM í ár. Engar breytingar urðu á dómi hans á seinni sýningu hans og lýkur hann þátttöku með 8,50 fyri byggingu og 8,38 fyrir hæfileika og aðaleinkunnina 8,43.

Í öðru sæti varð Dreki fran Lind í Svíþjóð sem hækkaði fyrir skeið frá 8,5 í 9, og fet frá 6,5 í 7 og lýkur keppni með hæfileikaeinkunnina með 8,46 og er með 8,37 í aðaleinkunn. Í þriðja sæti er hinn þýskættaði Bjartur von Hof Osterkamp sem hækkaði einnig hæfileika einkunsína úr 8,37 í 8,45 og lauk sýningu með 8,34 í aðaleinkunn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link