Landsamband hestamanna Þriðji sigur Valdísar

  • 26. júlí 2026
  • Fréttir

Frænkurnar Helga Rún Sigurðardóttir og Valdís Mist Eyjólfsdóttir fagna hér Íslandsmeistaratitlum sínum, Valdís vann töltið og Helga Rún var stigahæsti knapinn í barnaflokki.

Niðurstöður úr A úrslitum í tölti í barnaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga

Valdís Mist Eyjólfsdóttir er búin að eiga frábæran dag á Íslandsmótin en rétt í þessu var hún að landa sínum þriðja sigri og er nú Íslandsmeistari í tölti, slaktaumatölti og barnaflokki.

Jafnir í öðru sæti í töltinu voru Aron Einar Ólafsson á Fengsæl frá Jórvík og Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga með 6,94 í einkunn. Aron Einar og Fengsæll unnu einmitt B úrslitin í gær og Oliver og Öfi urðu Íslandsmeistarar í fjórgangi fyrr í dag.

Helga Rún Sigurðardóttir var einnig verðlaunuð sem stigahæsti knapinn í barnaflokki en hún átti góðu gengi að fagna á mótinu og var í mörgum úrslitum

Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.

Niðurstöður A úrslitum í tölti í barnaflokk

Tímabil móts: 22.07.2026 – 26.07.2026
Nr. 1
Valdís Mist Eyjólfsdóttir – Fákur – Hnota frá Þingnesi – 7,00
Hægt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,50 6,50 7,00 7,00 7,50 6,83
Greitt tölt 7,50 7,50 7,00 7,00 7,00 7,17

Nr. 2-3
Aron Einar Ólafsson – Geysir – Fengsæll frá Jórvík – 6,94
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 6,50 7,00 6,83
Tölt með hraðamun 6,50 6,50 6,50 7,00 7,00 6,67
Greitt tölt 7,00 7,50 7,50 7,00 7,50 7,33

Nr. 2-3
Oliver Sirén Matthíasson – Fákur – Öfgi frá Káratanga – 6,94
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 6,50 7,00 6,83
Tölt með hraðamun 7,00 7,00 7,00 6,50 6,00 6,83
Greitt tölt 7,00 7,00 7,50 7,00 7,50 7,17

Nr. 4
Embla Sirén Matthíasdóttir – Fákur – Fluga frá Garðabæ – 6,89
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,00 7,00 7,00 6,50 6,50 6,67
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00

Nr. 5
Helga Rún Sigurðardóttir – Fákur – Drottning frá Íbishóli – 6,67
Hægt tölt 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50 6,50
Tölt með hraðamun 7,00 6,50 6,50 6,50 6,50 6,50
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 6,50 7,00 7,00

Nr. 6
Svala Björk Hlynsdóttir – Fákur – Sigur frá Auðsholtshjáleigu – 6,44
Hægt tölt 6,50 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,00 6,00 6,50 6,50 6,00 6,17
Greitt tölt 5,50 5,00 7,00 6,50 6,50 6,17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link