Norðurlandamót Sterk íslensk sveit ungra knapa

  • 2. ágúst 2026
  • Fréttir

Sara Dís Snorradóttir og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili eru á meðal þeirra para sem keppa fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti.

Alls munu fjórtán knapar keppa fyrir Íslands hönd í yngri flokkum á NM. Hér kynnumst við þessum glæsilega hópi og hestunum þeirra.

Norðurlandamótið fer fram í Svíþjóð, nánar tiltekið á Margaretehof á Skáni í Suður-Svíþjóð, dagana 4.–9. ágúst. Alls eru það sex þjóðir sem senda keppendur til leiks en það eru Danmörk, Finnland, Færeyjar, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Keppt er í þremur aldursflokkum, þ.e. fullorðins-, ungmenna- og unglingaflokki, og er keppt bæði í íþrótta- og gæðingakeppni.

Mótið er afar skemmtilegt áhorfs og fjöldi góðra knapa og hesta tekur þátt. Misjafnt hefur verið hversu sterkt lið Ísland sendir til leiks og veltur það oft á því hvort knapar okkar flytja út sína keppnishesta fyrir mótið eða styðjast við lánshesta ytra, en hið síðarnefnda hefur oft verið raunin. Nú er hins vegar annað upp á teningnum því margir knapar mæta með keppnishesta sem þeir þekkja vel. Því fylgir alltaf mikill heiður að fá að keppa fyrir hönd síns lands og skiptir þá engu máli hvort tilefnið er Norðurlanda- eða heimsmeistaramót.

Mótið er að sjálfsögðu sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV og verður öflugur fréttaflutningur af því hér á vefsíðu Eiðfaxa.

Í þessari grein ætlum við að kynnast betur okkar fólki í ungmenna- og unglingaflokki. Alls eru það fjórtán knapar sem tilheyra ungmenna- og unglingaflokki á Norðurlandamóti. Tólf þeirra keppa í ungmennaflokki og tveir í unglingaflokki í íþróttakeppni. Þær Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Kristín Eir Hauksdóttir Holaker keppa í ungmennaflokki í íþróttakeppni, þrátt fyrir að tilheyra unglingaflokki heima á Íslandi. Þetta er vegna þess að þær falla undir ungmennaflokk innan FEIF, en sá flokkur miðast við 17 ára aldur.

A-flokkur ungmenna

Í A-flokki ungmenna eru það tveir knapar sem tefla fram hestum:

  • Guðmar Hólm Líndal er á Leik frá Lækjamóti. Leikur varð Norðurlandameistari í A-flokki árið 2022, þá setinn af Helgu Unu Björnsdóttur í úrslitum en sýndur af James Faulkner í forkeppni. Leikur er 11 vetra gamall og með 1. verðlaun í kynbótadómi, undan Konsert frá Hofi og Gátu frá Lækjamóti.
  • Kristín Eir Hauksdóttir Holaker er á Engli frá Ytra-Bægisá sem er 16 vetra gamall, undan Arði frá Brautarholti og Eik frá Dalsmynni. Engill er hátt dæmdur og reynslumikill hestur sem hefur náð góðum árangri í gegnum tíðina í hinum ýmsu greinum. Hann er nú keppnishestur hjá Linneu Einarsson í Svíþjóð og hefur hæst farið í 8,40 í A-flokki í ár.
B-flokkur ungmenna

Í B-flokki ungmenna teflir Ísland fram vaskri sveit fjögurra öflugra og sigursælra knapa á mjög sterkum stóðhestum:

  • Sara Dís Snorradóttir keppir á hinum reynda höfðingja Nökkva frá Syðra-Skörðugili, sem stóð eftirminnilega efstur í B-flokki gæðinga á Landsmóti árið 2016. Nökkvi er 18 vetra gamall undan Aðli frá Nýjabæ og Láru frá Syðra-Skörðugili. Sara og Nökkvi hafa gert það gott í B-flokki og hæst hlotið 8,88 í A-úrslitum.
  • Hekla Rán Hannesdóttir mætir á Tindi frá Árdal sem er 9 vetra gamall undan Ljósvaka frá Akureyri og Þrumu frá Árdal. Þau hafa gert það gott saman í keppni og voru í B-úrslitum á Landsmóti í sumar þar sem þau hlutu 8,70 í einkunn.
  • Jón Ársæll Bergmann teflir fram Viskusteini frá Íbishóli sem er 8 vetra gamall undan Óskasteini frá Íbishóli og Rímu frá Gýgjarhóli. Þeir hafa gert það gott í B-flokki, hlutu 8,72 í milliriðli á Landsmóti í sumar og tóku þátt í A-úrslitum.
  • Guðmar Hólm Líndal keppir á Arthúri frá Baldurshaga sem er 15 vetra gamall undan Ársæli frá Hemlu II og Kengálu frá Búlandi. Arthúr hefur verið keppnishestur James Faulkner í Svíþjóð, var í A-úrslitum á sænska meistaramótinu á síðasta ári og hefur farið hæst í 8,68 í úrslitum á þessu ári.
Unglingaflokkur gæðinga
  • Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Dyggur från Stummelbol eru einu keppendur Íslands í gæðingakeppni í unglingaflokki. Dyggur er 7 vetra gamall undan Birni frá Svignaskarði og Sif frá Kálfhóli 2. James Faulkner hefur keppt á honum í Svíþjóð í ár og hæst farið í 8,25 í B-flokki.
Tölt T1 – Ungmennaflokkur

Í þessari grein eru knaparnir sem keppa fyrir Íslands hönd alls tíu talsins:

  • Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Dyggur från Stummelbol keppa í þessari grein líkt og í gæðingakeppninni. Elísabet Líf þarf að keppa við eldri knapa því hún er ennþá í unglingaflokki heima, en keppir sem ungmenni á NM vegna aldursreglna FEIF. Dyggur er ungur að árum og því ekki mjög reyndur í keppni en hann hefur þó farið í nokkrar töltkeppnir með ágætis árangri.
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir keppir á hryssunni Tófu Þorvardóttir från Stall Vitavillan. Tófa er 16 vetra gömul undan Þorvari frá Hólum og Slettu fra Røde Hus. Hún er með háan kynbótadóm og er mikið reynd í keppni í hinum ýmsu greinum. Hún hefur náð bestum árangri í skeiðgreinum og fimmgangi og gæti Þórgunnur því tryggt sér mikilvæga punkta í samanlögðum fimmgangsgreinum í töltinu.
  • Elva Rún Jónsdóttir keppir á hinum 10 vetra gamla Kvasi frá Steinnesi sem er 1. verðlauna stóðhestur undan Odda frá Hafsteinsstöðum og Silju frá Steinnesi. Kvasir hefur töluverða reynslu í fjórgangi og tölti og hefur hæst hlotið 6,63 í tölti.
  • Eva Kærnested mætir á keppnishesti sínum Loga frá Lerkiholti sem er 13 vetra gamall undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Marglyttu frá Feti. Þau hafa náð góðum árangri saman í tölti og hafa nokkrum sinnum farið vel yfir sjöuna.
  • Fanndís Helgadóttir er á hesti sem hún þekkir vel, rétt eins og Eva, en hann heitir Ötull frá Narfastöðum. Hann er 19 vetra gamall undan Draumi frá Lönguhlíð og Gná frá Hofsstaðaseli. Þeirra sterkasta grein er slaktaumatölt en þau hafa einnig náð fínum árangri í T1.
  • Guðný Dís Jónsdóttir keppir á 8 vetra gömlum stóðhesti, Laka från Adalgården, sem er undan Kjarval från Knutshyttan og Gyllingu frá Akranesi. Máni Hilmarsson hefur keppt á þessum hesti undanfarið með fínum árangri í bæði tölti og fjórgangi.

Til viðbótar eru pörin úr B-flokki ungmenna einnig skráð í töltið:

  • Guðmar Hólm Líndal keppir, líkt og í B-flokki, á Arthúri frá Baldurshaga sem er þó nokkuð reyndur í töltkeppni og hefur hæst hlotið 7,13.
  • Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal eru hér einnig á meðal keppenda en Tindur hefur hæst hlotið 7,43 í töltkeppni.
  • Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli hafa hæst farið í 7,20 í forkeppni í tölti.
  • Sara Dís Snorradóttir og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili eru einnig skráð en í þessa grein og er hæsta einkunn þeirra 6,44.
Tölt T1 – Unglingaflokkur

Tveir knapar frá Íslandi keppa í tölti í unglingaflokki:

  • Elísabet Benediktsdóttir er á Mío från Änghaga, sem er 12 vetra gamall undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Kleópötru frá Feti. Helsta keppnisgrein hans er slaktaumatölt og fjórgangur.
  • Viktor Arnbro keppir á Ársólu från Stensäter, sem er 11 vetra gömul undan Vaka från Österåker og Hnotu frá Efri-Rauðalæk. Hennar helstu keppnisgreinar eru fimmgangur og gæðingaskeið en hún hefur einnig hlotið 6,07 hæst í tölti.
Tölt T2 – Ungmennaflokkur

Fjórir knapar taka þátt í slaktaumatölti ungmenna frá Íslandi:

  • Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli eru hér í sinni aðalgrein í íþróttakeppni þar sem þeir hlutu 7,43 í forkeppni í vor og 7,54 í úrslitum.
  • Kristín Eir Hauksdóttir Holaker er hér á Engli frá Ytra-Bægisá sem hún keppir einnig á í A-flokki, fimmgangi og gæðingaskeiði. Kristín er ennþá í unglingaflokki samkvæmt flokkaskiptingu heima á Íslandi. Engill hefur gert það gott í slaktaumatölti og hæst hlotið 7,03 í ár.
  • Guðmar Hólm Líndal og Arthúr frá Baldurshaga eru á meðal keppenda en Arthúr hefur staðið sig vel í slaktaumatölti og hæst hlotið 7,07 í ár.
  • Fanndís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum eru afar góð í slaktaumatölti og urðu m.a. Íslandsmeistarar unglinga í greininni árið 2024. Þá urðu þau í 2. sæti í ungmennaflokki á Íslandsmótinu í ár með 7,25 í úrslitum.
Tölt T2 – Unglingaflokkur
  • Elísabet Benediktsdóttir og Mío från Änghaga keppa í þessari grein sem eina parið frá Íslandi. Mío hefur gert það gott í þessari grein og hæst hlotið 7,27 í forkeppni.
Fjórgangur V1 – Ungmennaflokkur

Í fjórgangi ungmenna eru fimm pör frá Íslandi á ráslista sem öll hafa verið kynnt til leiks áður í þessari samantekt:

  • Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal. Í fjórgangi hefur Tindur hæst hlotið einkunnina 7,10.
  • Eva Kærnested og Logi frá Lerkiholti hafa staðið sig vel í fjórgangi og er hæsta einkunn þeirra í ár 6,70 í forkeppni.
  • Guðmar Hólm Líndal og Arthúr frá Baldurshaga gætu orðið sterkir í þessari grein en Arthúr hefur hæst hlotið 7,10 í forkeppni.
  • Elva Rún Jónsdóttir og Kvasir frá Steinnesi. Kvasir hefur hæst hlotið 6,70 í forkeppni í fjórgangi.
  • Guðný Dís Jónsdóttir og Laki från Adalgården. Laki hefur hæst hlotið 6,83 í forkeppni í fjórgangi í ár.
Fjórgangur V1 – Unglingaflokkur
  • Elísabet Benediktsdóttir og Mío från Änghaga keppa ein íslenskra knapa í þessari grein. Besti árangur Mío er 6,83 í fjórgangi.
Fimmgangur F1 – Unglingaflokkur
  • Viktor Arnbro og Ársól från Stensäter keppa í fimmgangi unglinga sem er sterkasta grein Ársólar, og hlaut hún m.a. 6,63 í forkeppni á sterku móti á Margaretehof í vor.
Fimmgangur F1 – Ungmennaflokkur

Tveir knapar frá Íslandi eru í fimmgangi ungmenna:

  • Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Engill frá Ytra-Bægisá eru hér skráð til leiks. Engill á mjög góðan feril í fimmgangi að baki hér á árum áður með Snorra Dal og hefur nú verið að vaxa að nýju í Svíþjóð í ár. Hann var t.a.m. í B-úrslitum í fullorðinsflokki á sænska meistaramótinu.
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan ættu að geta orðið ansi góðar saman í fimmgangi en Tófa varð þriðja á sænska meistaramótinu í fullorðinsflokki nú í ár.
250 metra skeið – Ungmennaflokkur
  • Dagur Sigurðarson og Galbjartur frá Hóli mæta til leiks í skeiðgreinar fyrir hönd Íslands. Galbjartur er 11 vetra gamall undan Hófadyni frá Hafsteinsstöðum og Mjöll frá Hóli. Hann hefur m.a. hlotið 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi og er besti tími hans í 250 metra skeiði 22,84 sekúndur.
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan eru einnig skráðar í 250 metra skeiðið. Tófa á ekki skráðan árangur í þeirri grein en hefur náð ágætis tímum í 150 metra skeiði.
Gæðingaskeið PP1 – Ungmennaflokkur

Hér eru það þær stöllur Kristín Eir og Þórgunnur sem keppa fyrir okkar hönd:

  • Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Engill frá Ytra-Bægisá keppa einnig í gæðingaskeiði þar sem Engill hefur hæst náð 7,67 í einkunn.
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan eru skráðar til leiks en besti árangur Tófu í gæðingaskeiði í ár er einkunnin 7,08 á sænska meistaramótinu.
Gæðingaskeið PP1 – Unglingaflokkur
  • Viktor Arnbro og Ársól från Stensäter eru einu keppendur Íslands í þessari grein í unglingaflokki. Viktor er nýkrýndur Íslandsmeistari í greininni og hefur Ársól hæst hlotið 6,50 í gæðingaskeiði.
100 metra skeið – Ungmennaflokkur
  • Dagur Sigurðarson og Galbjartur frá Hóli mæta í 100 metra skeið, líkt og 250 metra skeiðið. Galbjartur hefur nokkrum sinnum farið á undir 8 sekúndum og á best 7,77 sekúndur.
100 metra skeið – Unglingaflokkur
  • Viktor Arnbro og Ársól från Stensäter ætla einnig að taka þátt í 100 metra skeiði en þar á Ársól ekki skráðan árangur.
Framundan eru spennandi dagar

Ljóst er að það stefnir í æsispennandi daga á Margaretehof þar sem okkar efnilegasta fólk mun mæta til leiks og takast á við jafnaldra sína frá hinum Norðurlandaþjóðunum. Það verður sannarlega gaman að fylgjast með íslensku æskunni á mótinu og sjá hana láta ljós sitt skína auk þess að öðlast mikilvæga reynsli. Við óskum öllum þessum ungu og efnilegu knöpum, sem og öllum öðrum keppendum, innilega góðs gengis á Norðurlandamótinu.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link