Þarf að skilgreina alvarlega áverka betur?
Skoða þarf framkvæmd kynbótasýninga og túlkun dómskalans með það fyrir augum að lágmarka slysa- og áverkahættu. Félag hrossabænda hyggst nú skipa starfsnefnd til að ræða málefnið.
Á aðalfundi Félags hrossabænda var stjórn félagsins hvött til að bregðast fljótt við skýrslu dýralæknis hrossasjúkdóma, þar sem segir „að endurskoða þurfi umgjörð keppni og sýninga og þær hugmyndir sem við höfum mótað okkur um getu og form íslenska hestsins.“ Í greinagerð ályktunar þess efnis er spurt hvort ekki þurfi að skilgreina alvarlega áverka betur. Þá er því velt uppi hvort of mikilli ábyrgð sé skellt á knapa og hvort ekki væru fleiri þættir sem hefðu áhrif.
Á stjórnarfundi Fhb sem haldin var í desember sl. ákvað stjórnin svo að skipa starfsnefnd til að rýna í málið. Samkvæmd fundargerð Fhb fengu Bjarni Jónasson, Vignir Sigurólason, Sigurður Sigurðarson, Anna Valdimarsdóttir, Þorvaldur Árni Þorvaldsson, Svanhildur Hall og Viðar Steinarsson boð um að sitja í nefndinni sem Sigbjörn Björnsson mun leiða. Fyrsti fundur hins nýja starfshóps er áætlaður nú í janúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH