Jarl sestur í helgan stein
Einn af sigursælasti keppnishestur heims, Jarl frá Miðkrika, hefur „lagt járnin á hilluna“ og hætt keppnisþáttöku, 18 vetra að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eiganda Jarls.
Jarl frá Miðkrika, sem nú er 18 vetra gamall, hefur unnið fjóra heimsmeistaratitla og vann alls til tíu verðlauna á heimsmeistaramótum ásamt Norðmanninum Stian Pedersen.
Jarl er undan Andvara frá Ey og Huld frá Hvolsvelli, ræktaður af Eyþóri Óskarssyni. Lengst af var hann keppnishestur norðmannsins Stians Pedersens. Saman unnu þeir fjóra heimsmeistaratitla og hlutu alls tíu verðlaun á heimsmeistaramótum. Eftir að hafa unnið tvölfalt, í fjórgangi og tölti, á heimsmeistaramótinu 2007 var Jarl seldur Luciu Koch í Austurríki og með henni hélt sigursæll keppnisferill hans áfram og urðu þau m.a. Mið-Evrópumeistarar þrjú ár í röð, nú síðast árið 2012.
Þó Jarl sé nú sestur í helgan stein mun hann þó áfram leggja sitt af mörkum í ræktunarstarfi og sinna hryssum eftir óskum. Afkvæmi hans hafa mörg vakið verðskuldaða athygli á keppnisvellinum og er þar þekktastur stóðhesturinn Globus fá Jacobsgarden, keppnishestur Stians Pedersen.
Árið 2009 birti Eiðfaxi viðtal við Luciu Koch um Jarl en nálgast má viðtalið hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH