Norðurlandamót Lára og Álfur efst í fjórgangi ungmenna

  • 7. ágúst 2026
  • Uncategorized @is

Lára Gardarsdottir Hesselmann og Álfur från Knutshyttan. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/Clfoto

Fjórir íslenskir keppendur tóku þátt í fjórgangi ungmenna

Forkeppni í fjórgangi ungmenna á Norðurlandamótinu fór fram nú eftir hádegi. Fjórir íslenskir keppendur tóku þátt í þeirri forkeppni en það voru þær Eva Kærnested, Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir og Hekla Rán Hannesdóttir.

Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti hlaut 6,87 í einkunn og er í 2.sæti og því með öruggt sæti í A-úrslitum. Elva Rún keppti á Kvasi frá Steinnesi og hlaut 6,70 í einkunn og 9.sætið hún keppir því til B-úrslita. Guðný Dís og Laki från Adelgården hlutu 5,67 og Hekla Rán og Tindur frá Árdal hlutu ekki einkunn þar sem hann missti skeifu í stökksýningu.

Efst að lokinni forkeppni er Lára Gardarsdottir Hesselmann á Álfi från Knutshyttan með 6,90 í einkunn en hún keppir fyrir hönd Svíþjóðar.

 

Ungmennaflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Lára Gardarsdottir Hesselman Álfur från Knutshyttan 6,90
2 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 6,87
3-4 Óskar Erik Kristjánsson Kjarkur frá Vorsabæ II 6,83
3-4 Tekla Petersson Óríon frá Lækjamóti 6,83
5 Saga Berggren Kolfinnur från Margaretehof 6,77
6-7 Paloma Eklund Andersson Tangó från Zimsen 6,77
6-7 Pernille Hansen-Christiansen Bakkus fra Grundet Hus 6,77
8 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6,73
9 Elva Rún Jónsdóttir Kvasir frá Steinnesi 6,70
10 Gabriella Stenfeldt Johansen Dans frá Álfhólum 6,57
11 Julie Thorsbye Andersen Aron frá Þóreyjarnúpi 6,50
12 Molly Eriksson Erró frá Ármóti 6,47
13 Silja Stefansdottir Magni fra Kvalen 6,23
14 Guðný Dís Jónsdóttir Laki från Adalgården 5,67
15 Thea Oxaas-Egge Dans fra Sigersberg 5,37
16 Hekla Rán Hannesdóttir Tindur frá Árdal 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link