Norðurlandamót Hraði sigurvegari A-flokks á Norðurlandamóti

  • 7. ágúst 2026
  • Uncategorized @is

Hraði fra Skovhuset og Laura Midtgård. Ljósmynd: Cassanda Laikmets

Gormur og Þórður hlutu silfur

A-úrslitum í A-flokki gæðinga var að ljúka rétt í þessu á Norðurlandamóti. Leiðinlegt atvik setti strik í reikninginn í A-úrslitum því eftir að fyrri skeiðspretti var lokið féll stór skjár við völlinn niður á nærstadda áhorfendur en samkvæmt heimildum Eiðfaxa urðu ekki alvarleg slys á fólki.

Ísland átti einn fulltrúa í þessum úrslitum, Gorm frá Villanora, sem sýndur var af Þórði Þorgeirssyni og áttu þeir titil að verja. Þeim tókst þó ekki að ná aftur í titilinn og urðu í 2.sæti með 8.66 í einkunn, engu að síður góður árangur hjá þeim. Sigurvegari A-úrslitanna er Hraði fra Skovhuset sem var einnig sigurvegari B-úrslita í gær, knapi á honum er Laura Midtgård sem keppir fyrir Danmörk. Í þriðja sæti varð svo Týr från Svala Gård og Louise Löfgren sem keppa fyrir hönd Svíþjóðar.

 

A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Hraði fra Skovhuset Laura Midtgård 8,76
2 Gormur fra Villanora Þórður Þorgeirsson 8,66
3 Týr från Svala Gård Louise Löfgren 8,53
4 Svava från Ekeby Daníel Ingi Smárason 8,47
5 Gilda fra Stenkullagård Laura Nyström 8,45
6 Völsungur frá Skeiðvöllum Susanne Larsen Murphy 8,44
7 Laxnes frá Lambanesi Lene Thorud 8,36
8 Heimir från Solhäll Eyvindur Mandal 8,04

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link