Blíða og frábær hestakostur
Frábært veður er í Skagafirði þessa dagana en þar fer nú fram Landsmót hestamanna að Hólum í Hjaltadal. Ekki er of seint að tía sig norður og vera með í herlegheitunum.
Þetta er í þriðja sinn sem Landsmót er haldið á Hólum en það var fyrst árið 1966. Á eftir því fylgdi talsvert hlé en mótið var haldið þar aftur árið 2016 og nú árið 2026.

Skemmtileg dagskrá liggur fyrir út vikuna og hefur hestakosturinn ekki valdið vonbrigðum, enda hafa fjölmörg met verið slegin það sem af er mótsins.
Ef ábótavant er um áætlanir um helgina er kjörið að henda sér í Skagafjörðinn og ná aðalstemningunni á lokadegi mótsins sem er á morgun, laugardag.
Föstudagur 10. júlí
10:00 B-flokkur ungmenna B-úrslit
10:30 B-flokkur áhugamanna B-úrslit
11:00 B-flokkur B-úrslit
11:45 Matarhlé
13:00 Verðlaunaafhending hryssur
14:30 Hlé
14:50 Verðlaunaafhending stóðhestar
16:20 Hlé
16:40 A-flokkur ungmenna B-úrslit
17:25 A-flokkur B-úrslit
18:15 Matarhlé
19:15 100m skeið
20:15 Sýning ræktunarbúa
21:30 Tölt T1 A-úrslit
22:00 Dagskrárlok
Laugardagur 11. júlí
10:00 B-flokkur ungmenna A-úrslit
10:30 B-flokkur áhugamanna A-úrslit
11:00 Unglingaflokkur A-úrslit
11:30 A-flokkur ungmenna A-úrslit
12:15 Matarhlé
13:15 Afkvæmahestar 1v. og heiðursverðlaun 2. sæti
16:20 Hlé
16:40 Barnaflokkur A-úrslit
17:10 B-flokkur A-úrslit
18:00 Matarhlé
19:00 Sleipnisbikarinn
19:30 Ræktunarbú mótsins
19:45 Heiðursviðurkenningar
20:30 A-flokkur A-úrslit
21:15 Dagskrárlok
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Hæst dæmdi hestur í heimi
Dalvar jafnar heimsmet Viðars
Þýski landsliðshópurinn klár