Jökull ráðinn nýr landsliðsþjálfari Svíþjóðar
Svíar hafa átt góðu gengi að fagna, sérstaklega á Norðurlandamóti, þar sem þeir hafa unnið Liðsbikarinn þrjú mót í röð. Ljósmynd: Cassandra Laikmets
Sænska Íslandshestasambandið (SIF) hefur tilkynnt um ráðningu á Jökli Guðmundssyni sem nýjum landsliðsþjálfara Svíþjóðar, samhliða honum tekur Sebastian Nordlander við nýstofnuðu starfi aðstoðarlandsliðsþjálfara með sérstaka áherslu á yngri landsliðsknapa. Hlutverk Sebastians sem aðstoðarþjálfara mun jafnframt hafa sérstaka áherslu á ungmennastarf. Þeir munu taka formlega við störfum þann 1. október næstkomandi.
Jökull tekur við keflinu af Sissel Holmén sem kveður starfið eftir sjö farsæl ár. Hún skilar góðu búi, en sænska landsliðið bar nýverið sigur úr býtum sem stigahæsta þjóðin á Norðurlandamótinu á Margaretehof en þann bikar hafa þau unnið síðastliðin þrjú Norðurlandamót.
Jökull hefur verið búsettur í Svíþjóð frá árinu 1998 og er öllum hnútum kunnugur í Íslandshestaheiminum. Hann hefur m.a. starfað sem járningamaður, þjálfari og reiðkennari, auk þess að reka hrossarækt á Allemansängen ásamt fjölskyldu sinni. Jökull hefur sjálfur keppt með sænska landsliðinu og tekið að sér ýmis trúnaðarstörf í gegnum tíðina og er meðal annars sem gæðingadómari og oft sýningastjóri og mælingamaður á kynbótasýningum.
í viðtali við sænska hestamiðilinn Ridsport kveðst Jökull mjög spenntur fyrir verkefninu. Markmið hans er ekki að byrja upp á nýtt, heldur að byggja ofan á þann góða grunn sem til staðar er og skapa sterka liðsheild fyrir komandi stórmót.
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Snerting frá Laugalandi I efst á Hólum
Starf yfirþjálfara Hæfileikamótunnar LH
Djákni hæst dæmdur á Axevalla