Opnun Icelandic HorseWorld – visitor center á Skeiðvöllum – viðtal
Í dag opnaði sérstök heimsóknarmiðstöð á Skeiðvöllum, sem ætluð er fyrir bæði innlenda og erlenda gesti sem hafa áhuga á að fræðast um Íslenska hestinn. Sýningin ber nafnið Icelandic HorseWorld – visitor center og býður upp á fjölbreyttar upplýsingar um Íslenska hestinn og einnig verður kaffihús opið þar í sumar.
Opnunartímar sýningarinnar eru á mili 9:00-17:00 á daginn.
Eiðfaxi hvetur áhugamenn um Íslenska hestinn, sem og aðra sem forvitnir eru um hestinn, að skoða þessa frábæru aðstöðu og skemmtilegu sýningu, sem er bæði fjölbreytt og áhugaverð.
Meðfylgjandi er viðtal við framkvæmdarstjóra heimsóknarmiðstöðinnar, Katrínu Sigurðardóttur.