Lið Auðsholtshjáleigu óbreytt
Lið Auðsholtshjáleigu í Meistaradeildinni er óbreytt frá fyrra ári en það eru þau Þórdís Erla Gunnarsdóttir, Árni Björn Pálsson, Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Bjarnason sem skipa það.
Þetta er fimmta ár Auðsholtshjáleigu í deildinni en fyrstu tvö árin var það eingöngu skipað konum. Liðið hefur sett svip sinn á deildina með prúðmannlegri framkomu og glæsilegri reiðmennsku. Lið Auðsholtshjáleigu endaði í þriðja sæti í fyrra og er það besti árangur liðsins síðan það byrjaði.
Þórdís Erla Gunnarsdóttir er liðstjóri. Þórdís er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Þórdís hefur verið að gera það gott bæði á keppnisbrautinni sem og á kynbótabrautinni. En hún starfar við tamningar á Grænhól.
Árni Björn Pálsson endaði í þriðja sæti í einstaklingskeppninni i fyrra. Hann er einnig útskrifaður sem tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann hefur staðið sig vel bæði á kynbótabrautinni og í keppnum undanfarin ár. En hann var valin kynbótaknapi ársins. Eitt mesta afrek hans er glæsilegur sigur í A-flokki gæðinga á Landsmóti árið 2008 á Aris frá Akureyri og að hafa sigrað orðið Íslandsmeistari í tölti tvö ár í röð á Storm frá Herríðarhóli.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir hefur verið viðloðandi hestamennskuna frá blautu barnsbeini. Hún líkt og Árni og Þórdís er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Sylvía og Héðinn-Skúli hafa stimplað sig rækilega inn í fimmgangi í ár en þau urðu í öðru sæti á Íslandsmótinu.
Bjarni Bjarnason er líka menntaður frá Hólaskóla og hefur hann verið atkvæðamikill í skeiðkappreiðum undanfarin ár. Bjarni er Íslandsmeistari í 100m. skeiði á hryssunni Heru frá Þóroddstöðum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH