Íþróttafólk Reykjavíkur
Í gær var útnefnd íþróttafólk Reykjavíkur 2013 en það voru frjálsíþróttafólkið Aníta Hinriksdóttir úr ÍR og Helgi Sveinsson úr Ármanni sem voru útnefnd.
Einnig var nokkrum liðum og einstaklingum veitt verðlan fyrir árangurinn á árinu en í þeim hópi var Konráð Valur Sveinsson, tvöfaldur heimsmeistari. Gaman að sjá að tekið sé tillit til hestamanna og óskar Eiðfaxi Konráði til hamingju með árangurinn.
Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2013:
- Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR
- Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi
- Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
- Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður úr Skotfélagi Reykjavíkur
- Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Sundfélaginu Ægi
- Hannes Þór Halldórsson, knattspyrnumaður úr KR
- Helga María Vilhjálmsdóttir, skíðakona úr ÍR
- Helgi Sveinsson, frjálsíþróttamaður úr Ármanni
- Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni
- Konráð Valur Sveinsson, hestamaður úr Fáki
- Stella Sigurðardóttir, handknattleikskona úr Fram
- Sunna Víðisdóttir, kylfingur úr GR
Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2013:
- Fram: Íslandsmeistarar í handknattleik karla og kvenna auk bikarmeistara í knattspyrnu karla
- ÍR: Bikarmeistarar í handknattleik karla, bikarmeistarar í frjálsíþróttum beggja kynja og Íslandsmeistarar í keilu beggja kynja
- Júdófélag Reykjavíkur: Bikarmeistarar í sveitakeppni karla
- KR: Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla
- TBR: Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton
- Valur: Bikarmeistarar í handknattleik kvenna
- Víkingur: Íslandsmeistarar í karlaflokki í karate og í liðakeppni beggja kynja í borðtennis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH