Úrtöku frestað til morguns
Gullmóti/Úrtöku hefur verið frestað til morguns vegna slæmra vallaraðstæðna.
Tveir knapar voru hætt komnir eftir að hafa fallið, en völlurinn var mjög sleipur og beygjur hættulegar af þeim sökum. Þunnt laust lag er ofan á vellinum ofan á glerhörðu lagi þar undir. Þetta veldur því að hross renna auðveldlega í kröppum beygjum vallarins.
Mótsstjóri ásamt Formanni Fáks, yfirdómar og fulltrúa knapa tóku þessa ákvörðun.