Landsamband hestamanna LH auglýsir eftir mótshöldurum

  • 15. september 2026
  • Fréttir

Landssamband hestamannafélaga (LH) hefur auglýst Íslandsmót og Áhugamannamót næstu ára til umsóknar. Áhugasöm hestamannafélög hafa frest til 1. október næstkomandi til að senda inn umsóknir.

Eftirfarandi mót eru nú auglýst til umsóknar:
  • Íslandsmót fullorðinna og ungmenna: 2028 og 2029
  • Íslandsmót barna og unglinga: 2029
  • Íslandsmót í gæðingalist: 2027 (innanhússmót sem haldið skal fyrir 15. maí)
  • Áhugamannamót Íslands: 2027

Nákvæmar dagsetningar mótanna verða ákveðnar í samráði við verðandi mótshaldara og með hliðsjón af annarri mótadagskrá

Umsóknir skulu berast skrifstofu LH á netfangið [email protected] eigi síðar en 1. október nk.

Ljóst er hverjir halda helstu mót árið 2027, en Hestamannafélagið Skagfirðingur mun sjá um Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2027 og Hestamannafélagið Sprettur heldur Íslandsmót barna og unglinga 2027.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link