Vísir frá Kagaðarhóli á leið til Þýskalands

  • 18. september 2026
  • Fréttir

Vísir frá Kagaðarhóli með nýjum eiganda, Mia Hrastelj

Stefnt með hann á heimsmeistaramótið í Rieden á næsta ári

Vísir frá Kagaðarhóli er seldur og á leið til Þýskalands. Vísir og fyrrum knapi hans og eigandi Páll Bragi Hólmarsson hafa náð frábærum árangri á keppnisbrautinni undanfarin ár og þá sérstaklega í tölti. Þeir hafa m.a. unnið töltið í Meistaradeild Líflands, Meistaradeild KS og á Reykjavíkurmeistaramótinu 2024. Þeir hafa hæst farið í 8,67 í tölti og í 8,88 í úrslitum og á gæðingamótinu á Flúðum í sumar unnu þeir B flokkinn með 9,04 í einkunn.

Nú skilja hins vega leiðir en nýr knapi er Mia Hrastelj.

„Það er stefnt á að hesturinn fari út í nóvember. Hesturinn er búin að vera hjá Gústafi Ásgeiri Hinrikssyni á Árbakka og hefur Mia verið þar og við verið að aðstoða hana á meðan hún kynnist klárnum,“ segir Páll Bragi en stefnir Mia með Vísi á Heimsmeistaramótið í Rieden á næsta ári.

„Hún hefur verið að keppa töluvert og langaði að komast á hæsta level en hún ætlar sér stóra hluti með klárinn. Það er gaman að sjá hvað þau ná vel saman og það hefur gengið mjög vel með hann.“

Páll Bragi og Vísir voru á einum tímapunkti valdir í landsliðið en ákváðu að fara ekki út. Aðspurður hvort hann hafi sjálfur ekki vilja stefna með hestinn á mótið segir hann tímapunktinn til að selja hann hafi verið núna.

„Það hefði auðvitað verið gaman að enda okkar feril saman úti en það er ekkert á vísan að róa með að komast í liðið hér heima. Við þurfum líka að lifa á þessu og það var gluggi núna til að selja hann. Ég sé auðvitað mikið eftir honum en við erum búnir að eiga mjög góða tíma saman og mér þykir mjög vænt um þennan hest. Nú fær maður líka að hafa puttana í þessu með Miu og aðstoða hana áfram sem er mjög skemmtilegt,“ segir Páll að lokum.

Páll Bragi og Vísir frá Kagaðarhóli

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link