Margaretehof í Svíþjóð til sölu
Yfirlitsmynd af húsum á Margretarhof. Ljósmynd: Hemnet fasteignasala
Hinn sögufrægi hestabúgarður Margaretehof í Everöd í Kristianstad í Svíþjóð er komið á sölu. Búgarðurinn hefur um árabil verið ein helsta miðstöð íslenska hestsins á Norðurlöndum og haft gríðarlega þýðingu fyrir Íslandshestaheiminn í heild sinni.
Jörðin spannar alls um 174 hektara og státar af aðstöðu á heimsmælikvarða. Þar má nefna 275 fermetra glæsilegt íbúðarhús, sérstaka gestaíbúð með fimm svefnherbergjum, 120 fermetra leiguhús, 60×22 metra reiðhöll, nútímalegt tíu hesta hesthús ásamt tólf útiplássum, og sérhæfða endurhæfingaraðstöðu með vatnsbretti, kælikerfi og titringsgólfi. Á jörðinni eru einnig stórar vélaskemmur, dýralæknisaðstaða, umtalsvert skóglendi, ræktarland og grösug beitilönd.
Margaretehof hefur verið vettvangur fjölmargra stórmóta í hestaíþróttum í gegnum áratugina. Á svæðinu eru tvær keppnisbrautir, 200 og 250 metra hringvellir, ásamt 300 metra skeiðbraut.
Seljendur jarðarinnar, Montan-fjölskyldan, sem hefur byggt upp og hlúð að þessari merku starfsemi, vonast til þess að nýir eigendur muni hugsa staðinn áfram sem hestamiðstöð og halda merki íslenska hestsins áfram á lofti á þessum sögufræga stað. Ásett verð er 37 milljónir sænskra króna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson