Leita að fatnaði frá 1985 – 1990
„Kæru hestamenn, nú eru að fara af stað tökur á Hrossum, kvikmynd Benedikts Erlingssonar. Við leitum að fatnaði sem tengist hestamennsku frá ca 1985-1990. Gömlu góðu flauelishjálmarnir, reiðbuxur, reiðstígvél, lopapeysur, reiðfrakkar og reiðjakkar, lopasokkar, belgjagerðarúlpurnar og yfir höfuð allur fatnaður sem tengist hestamennsku og var í notkun um þetta leyti. Átt þú eitthvað inní geymslu sem þú vilt lána okkur? Ef svo er hafðu endilega sambandi við okkur á netfangið [email protected]“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH