Eyrún Ýr og Friðsemd efstar á stöðulista ársins í 100m skeiði
Eyrún Ýr og Friðsemd á Landsmótinu í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Á vefsíðu FEIF er stöðulisti ársins (e. annual ranking) í 100 metra skeiði aðgengilegur. Listinn tekur mið af tveimur bestu tímum hvers pars á alþjóðlegum mótum (WorldRanking) og er það meðaltal þeirra tíma sem ræður röðinni.
Efstar á stöðulistanum í ár eru Íslands- og Landsmótssigurvegaranir Eyrún Ýr Pálsdóttir og Friðsemd frá Kópavogi með glæsilegan meðaltíma upp á 7,340 sekúndur. Þær áttu frábæra spretti á árinu en þeirra tveir bestu tímar voru 7,30 og 7,38 sekúndur.
Í öðru sæti fylgir sænski knapinn Filippa Helltén og Óðinn from Inchree fast á hæla þeirra með meðaltímann 7,370 sekúndur (7,33 og 7,41).
Í þriðja sæti sitja Gústaf Ásgeir Hinriksson og Piltur frá Sturlureykjum 2 á tímanum 7,455 sekúndur (7,42 og 7,49). Gústaf og Piltur áttu gott tímabil og skipa þeir einnig 3. sæti á árslistanum í 250m skeiði.
Hnífjöfn barátta um efstu sætin
Í 4. sæti eru Hanna Rún Ingibergsdóttir og Orka frá Kjarri með 7,505 sekúndur. Svissneski knapinn Ladina Sigurbjörnsson-Foppa er í 5. sæti á Losta frá Ekru með 7,515 sekúndur og á því enn einn hestinn í fremstu röð á skeiðlistum ársins.
Topp 10 á stöðulista ársins í 100m skeiði (P2):
1. Eyrún Ýr Pálsdóttir / Friðsemd frá Kópavogi (IS) – 7,340 sek. (7,30 ; 7,38)
2. Filippa Helltén / Óðinn from Inchree (SE) – 7,370 sek. (7,33 ; 7,41)
3. Gústaf Ásgeir Hinriksson / Piltur frá Sturlureykjum 2 (IS) – 7,455 sek. (7,42 ; 7,49)
4. Hanna Rún Ingibergsdóttir / Orka frá Kjarri (IS) – 7,505 sek. (7,44 ; 7,57)
5. Ladina Sigurbjörnsson-Foppa / Losti frá Ekru (CH) – 7,515 sek. (7,48 ; 7,55)
6.–7. Johanna Kirchmayr / Eldur frá Kvíarhóli (AT) – 7,540 sek. (7,47 ; 7,61)
6.–7. Natalie Fischer / Ímnir fra Egeskov (DK) – 7,540 sek. (7,52 ; 7,56)
8. Guðmundur Einarsson / Draumur från Tängmark (SE) – 7,580 sek. (7,48 ; 7,68)
9. Alicia Palm / Ljúfa från Ekeholm (SE) – 7,590 sek. (7,41 ; 7,77)
10. Dagur Sigurðarson / Tromma frá Skúfslæk (IS) – 7,610 sek. (7,57 ; 7,65)
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Elli Sig lætur gamminn geisa