„Valið byggir á framförum, stöðugleika og árangri“

  • 10. október 2026
  • Fréttir

Landsliðshópur Íslands skipaður knöpum 21 árs og yngri fyrir starfsárið 2026–2027 ásamt Sigvalda Lárusi Guðmundssyni landsliðsþjálfara U21 og Sigurbirni Eiríkssyni formanni landsliðsnefndar

20 manna hópur U-21 árs landsliðsins var kynntur í gær

Landsliðshópur Íslands skipaður knöpum 21 árs og yngri fyrir starfsárið 2026–2027 var kynntur með formlegum hætti fimmtudaginn 8.oktobóer. Sýnt var beint frá valinu á EiðfaxaTV og á vef okkar.

Sigvaldi Lárus Guðmundsson, landsliðsþjálfari U21, flutti opnunarræðu þar sem hann fór yfir valið, undirbúninginn og verkefnin fram undan.

Í þeirri ræðu sagði Sigvaldi meðal annars að stóra markmiðið á næsta tímabili er heimsmeistaramót íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi, en valið á hópnum byggir á heildstæðu mati á framförum, árangri og stöðugleika knapa og hesta á liðnu keppnistímabili. Hópurinn samanstendur af knöpum sem verða á aldrinum 17 til 21 árs á keppnisárinu. Sigvaldi tók sérstaklega fram að valdir hefðu verið inn nokkrir nýliðar og yngri knapar með það markmið að þeir fengju dýrmætt tækifæri til að kynnast landsliðsstarfinu, umhverfinu og þeim kröfum sem gerðar eru á þessu stigi.

„Þetta er ekki auðvelt en það er mikið til af flottum krökkum. Á næsta ári erum við mest að fara horfa til heimsmeistaramótsins enda viljum við öll vinna gullin. Ég er þó líka að horfa fram í tímann og til næstu ára. Hvernig við byggjum ofan á starfið og eignumst enn öflugri knapa,“ sagði Sigvaldi við blaðamann eftir kynningu á Landsliðinu.

Dyrnar alls ekki lokaðar

Þá lagði landsliðsþjálfarinn ríka áherslu á að þótt hópurinn væri nú kynntur væru dyrnar alls ekki lokaðar. Hann áréttaði að hann héldi augunum vel opnum fyrir þeim knöpum sem ekki eru í hópnum að svo stöddu, og mögulegt yrði að taka inn knapa sem sýna miklar framfarir og standa sig vel á komandi keppnistímabili.

„Baráttan verður hörð og það verður mikil pressa. Ef einhver verður ekki að standa sig þá er annar knapi mættur til að taka sætið hans. Við erum heppin með það hvað við höfum úr stórum hópi flottra knapa að velja.“

Mikil vinna framundan

Baráttan um lokasætin á heimsmeistaramótið verður gríðarlega hörð, enda eru einungis fimm sæti í boði fyrir Íslands hönd í ungmennaflokki. Fram undan er markviss og fagleg vinna í vetur bæði á andlega, líkamlega og reiðmennskulega sviðinu, með reglulegri eftirfylgni til að tryggja að allir séu á toppi með sína hesta og sjálfan sig þegar endanlegt val á þeim sem keppa á HM fer fram.

Aðspurður hvort það væru einhver ákveðin mót sem hann horfir til við valið segist hann leggja áherslu á að knaparnir séu að mæta á þessi stærri WR íþróttamót. „Ég get ekki ætlast til að þau mæti á öll en auðvitað eru það þessi stærstu WR mót sem verður horft mest til, Íslandsmótið, Reykjavíkurmeistaramótin og WR íþróttamót Sleipnis og Geysis. Knaparnir þurfa þó líka að vera skynsöm og gera ekki of mikið með hestana sína,“

Sigvaldi óskaði knöpunum innilega til hamingju með valið og hvatti þá til að leggja hart að sér í vetrarstarfinu.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link