„Markmiðið var alltaf að komast í hópinn“
Apríl Björk Þórisdóttir er einn nýliðanna í U-21 árs landsliði Íslands í hestaíþróttum en valið var tilkynnt í síðustu viku. Eiðfaxi náði tali af henni í tilefni þess og forvitnaðist um viðbrögðin við landsliðssætinu.
Aðspurð um tilfinninguna að vera komin í hópinn stóð ekki á svörum: „Tilfinningin er mjög góð og það var gaman að fá símtalið frá Sigvalda. Það er mikill heiður að vera valin og fá að vera hluti af þessum flotta hópi sem U-21 er, og ég hlakka mikið til starfsins í vetur.“sagði Apríl kát í bragði.
Að komast í landsliðið var alls engin tilviljun heldur beint markmið hjá Apríl. Hún segir að landsliðssætið muni nýtast henni afar vel sem knapa: „Ég hlakka til vetrarins og er viss um að vera komin í landsliðið og þann flotta hóp sem U-21 er muni nýtast mér vel, bæði við að fá ráð við þjálfun og svo þegar út í keppnina er komið.“
Stefna Aprílar er skýr en hún stefnir á Heimsmeistaramótið á næsta ári og hefur úr góðum hrossakosti að moða. „Já, stefnan er á HM. Ég er með tvær frábærar merar; þær Lilju frá Kvistum, sem ég hef mest verið að keppa á í tölti, og svo Esju frá Miðsitju, sem ég hef verið að keppa á í fimmgangi,“ sagði Apríl að lokum full tilhlökkunar fyrir komandi verkefnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson