Mæðurnar vekja ekki síður eftirvæntingu en feðurnir

  • 19. október 2026
  • Fréttir

Séra Oddur. Ljósmynd: Helga Una Björnsdóttir.

Fákshólar: Trippatamningar haustsins

Höfundur ekur niður Ásveg – veginn hvaðan malbikaðar heimreiðir liggja í allar áttir, sællegir kynbótagripir prýða gróskumikla haga og úr hverjum glugga stirnir á verðlaunagripi. Ætli nokkurs staðar á byggðu bóli finnist vegarspotti þar sem jafn margir heims- og Íslandsmeistarar búa við?

Leiðin liggur að Fákshólum þar sem við tillum okkur í kaffistofuna; ég, Helga Una og hin þrífætta Vaka. Fyrir liggur að forvitnast um framtíðina.

„Þetta voru um 25 trippi sem voru frumtamin hér í haust,“ segir Helga Una. „Mikið frá okkur en svo önnur héðan og þaðan.“

Það er brjálað að gera að vanda, starfsfólk á þönum og til stendur að smala heim yngri trippum, klippa hófa og gefa ormalyf. Ég kem mér því beint að efninu og spyr hvernig hópurinn hafi komið fyrir og hvort eitthvað hafi skarað fram úr.

„Þau voru almennt mjög fín, fullt af fínum trippum,“ svarar Helga. „Ég gæti nefnt hérna myndarlega Skarpsdóttur undan Telmu frá Steinnesi sem ég er spennt fyrir.“

Það bendir ýmislegt til að það mertrippi gæti lukkast enda Telma frá Steinnesi komin í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, þar af á hún fjögur með yfir 8,50 í aðaleinkunn.

„Svo erum við að temja fyrstu afkvæmin undan Hildi og Hrefnu frá Fákshólum,“ bætir Helga við.

Þær stöllur þarf vart að kynna. Hildur hlaut vorið 2024 hæstu aðaleinkunn sem nokkur hryssa hafði hlotið á þeim tíma, eða 8.91.

Hrefna státar meðal annars af 9,5 fyrir tölt, fegurð í reið og samstarfsvilja í kynbótadómi og hafa þau Jakob leyft hestamönnum að njóta þeirra kosta á keppnisvellinum síðustu ár. Ber þar helst að nefna Íslandsmeistaratitil í slaktaumatölti árið 2024 og 2026.

En hvaða trippi eru þetta og hverjir eru feðurnir?

„Þetta eru tveir hestar, báðir undan Þráni frá Flagbjarnarholti. Reyndar höfum við helst verið með trippi núna undan Þráni, Skarpi og svo Viðari. Þeir eru allir að koma vel út.“

Það eru greinilega spennandi tímar fram undan í Fákshólum og hver veit nema Ásvegurinn geti stært sig af verðlaunagripum í nafni þessara trippa í framtíðinni.

Rétt að lokum spyrjum við lykilspurningarinnar: Hvert er besta trippanafn haustsins 2026?

Á því leikur enginn vafi og Helga svarar um hæl: „Séra Oddur. Séra Oddur frá Stað.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link