Halldór og Oliver heilluðu í Svíþjóð-

  • 9. maí 2011
  • Fréttir
Halldór og Oliver heilluðu í Svíþjóð-

Á nýafstöðnu móti í Svíþjóð vakti ístöltsmeistarinn Halldór Guðjónsson og hestagullið Oliver frá Kvistum verðskuldaða athygli í fimmgangskeppni. Hlutu þeir lokaeinkunnina 7,47 í A-úrslitum og luku keppni í öðru sæti. Leyndist þó engum að þarna er á ferðinni félagar sem eru til alls líklegir.

Oliver hlaut risadóm, 8,67 í aðaleinkunn, í kynbótasýningu árið 2009, er það næsthæsti dómur sem 5 vetra stóðhestur hefur fengið (Þóroddur frá Þóroddsstöðum hlaut 8,74 á LM 2004). Fékk Oliver þá einkunnina 8,67 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, skeið, stökk og vilja og geðslag og einkunnina 9,5 fyrir fegurð í reið. Oliver er undan Aroni frá Strandarhöfði og Otursdóttirinni Orku frá Hvammi. Hann var seldur til Svíþjóðar fyrir tveimur árum.

Gullknapinn Halldór Guðjónsson hefur gert það gott á keppnisbrautum undanfarin ár, hann var lengi vel tamningamaður í Dal en er nú búsettur í Svíþjóð. Hann leggur augljósa natni við þjálfun Olivers og ætlar sér greinilega stóra hluti. Ætli að þarna séu á ferðinni mögulegir landsliðskandídatar?

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link