Höfuðburður og hófalengd helsta ógnin
Heilsa og velferð haldast í hendur en góð heilsa ein og sér tryggir ekki velferð. Þetta kom fram í erindi Sigríðar sem lagði áherslu á mikilvægi þess að skilja þarfir hestsins og þau skilaboð sem hann gefur með hegðun sinni.
Þrýstingssár og hegðun hestanna
Sigríður fór yfir þróun þrýstingssára í munni keppnishesta á Landsmótum frá árinu 2012 til 2026. Tíðni áverkanna hefur verið breytileg milli móta og gerð méla getur haft áhrif á staðsetningu og alvarleika þeirra.
Hún vísaði einnig til nýlegrar rannsóknar á hegðun íslenskra keppnishesta þar sem fram komu tengsl milli áverka í munni og ágreiningshegðunar. Meðal þess sem skoðað var voru munnopnun, höfuðhreyfingar og taglsláttur. Slík hegðun getur gefið vísbendingar um óþægindi eða sársauka og undirstrikar mikilvægi þess að fylgjast með viðbrögðum hestanna í keppni.
Höfuðburður og hófalengd undir smásjánni
Sigríður fjallaði um áhrif höfuðburðar á öndun hesta. Ákveðin staða höfuðs og háls getur þrengt að efri öndunarvegi og haft áhrif á súrefnisflæði. Hún benti á mikilvægi þess að rannsaka þessi áhrif nánar hjá íslenskum keppnishestum.
Einnig ræddi hún álag á stoðkerfið og hvernig langir hófar og há fótlýfta geta aukið álag á sinar og liðbönd og stuðlað að eymslum og helti.
Að mati Sigríðar eru höfuðburður og hófalengd meðal þeirra þátta sem helst ógna velferð íslenskra keppnishesta.
Vill takmarka tíma á hægu tölti
Í lok erindisins beindi Sigríður sjónum að keppnisfyrirkomulaginu. Hún taldi mikilvægt að takmarka þann tíma sem hestar eru sýndir á hægu tölti og tryggja þeim nægan tíma til endurheimtar á milli sýninga. Þetta ætti einnig við um sérstaka forkeppni á Landsmóti.
Hún nefndi jafnframt að skoða þyrfti aðrar keppnisgreinar þar sem mikil áhersla er lögð á söfnun, meðal annars gæðingafimi.
Sigríður undirstrikaði mikilvægi velferðarskoðana og gagnasöfnunar í verkefninu „Klár í keppni“. Markmiðið er að koma í veg fyrir að hestar með alvarleg álagseinkenni taki þátt í keppni og nýta niðurstöðurnar til að þróa keppnishald með velferð hestanna að leiðarljósi.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing