Áhugamannadeild Norðurlands Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV

  • 1. nóvember 2026
  • Fréttir

Magnús Benediktsson og Unnur Rán Sigurpálsdóttir við undirritun samnings um beinar útsendingar á EiðfaxaTV

Keppnisdeildin haft góð áhrif á hestamennsku á stóru svæði

Áhugamannadeild Norðurlands og Eiðfaxi hafa endurnýjað samstarf sitt og undirritað nýjan samning um beinar útsendingar frá keppnum deildarinnar á EiðfaxaTV. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi keppnistímabili.

Unnur Rún Sigurpálsdóttir segir að samstarfið við Eiðfaxa hafi gengið sérlega vel og að gríðarleg aðsókn sé í deildina á nýjan leik. Um sextán lið eru þegar skráð til leiks. Að hennar sögn er mikil og góð stemning í kringum deildina og mikilvægi þess að sýna beint frá mótunum ótvírætt, bæði fyrir keppendur og áhorfendur heima í stofu.

Deildin hefur fest sig rækilega í sessi á svæðinu og sameinar um 70 knapa frá Austurlandi og alla leið vestur í Húnavatnssýslur. Unnur leggur áherslu á að tilvist hennar skipti gríðarlega miklu máli fyrir svæðið í heild, jafnt hvað varðar kennslu, hrossasölu sem og almennt félagsstarf áhugafólks um hestaíþróttir.

Aðspurð um nýjungar fyrir komandi vetur nefnir Unnur að til umræðu sé að bæta við B-úrslitum, þótt endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir enn sem komið er. Að öðru leyti verður keppnisfyrirkomulag hefðbundið þar sem keppt verður í tölti, fjórgangi og fimmgangi. Mótahaldinu verður skipt á milli Akureyrar og Sauðárkróks, en áætlað er að tvö mót fari fram á Akureyri og eitt á Sauðárkróki.

Eiðfaxi hlakkar til áframhaldandi samstarfs í vetur og hvetur áhugafólk um hestaíþróttir til að fylgjast vel með beinum útsendingum á EiðfaxaTV.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link