Opið íþróttamót Andvara
Opið íþróttamót Andvara verður haldið helgina 21. og 22. maí næstkomandi. Ef skráning verður mikil mun mótið hefjast þann 20. maí.
Skráning fer fram í félagsheimili Andvara mánudaginn 16. maí á milli kl. 20 – 22 eða í símum 8699346 eða 8685995. Skráningargjald er 3500 kr. fyrir fyrstu skráningu en 3000 kr. fyrir allar skráningar eftir það. Í barna og unglingaflokk kostar fyrsta skráning 2500 kr en allar skráningar eftir það kosta 2000 kr.
Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður eða sameina flokka ef skráning er ekki næg.
Flokkar sem í boði verða eru eftirfarandi:
1.Barnaflokkur
a.Tölt b.Fjórgangur
2.Unglingaflokkur
a.Tölt b.Fjórgangur c.Fimmgangur d.Gæðingaskeið
3.Ungmennaflokkur
a.Tölt b.Slaktaumatölt c.Fjórgangur d.Fimmgangur e.Gæðingaskeið
4.Meistaraflokkur
a.Tölt b.Slaktaumatölt c.Fjórgangur d.Fimmgangur e.Gæðingaskeið
5. 1.flokkur
a.Tölt b.Slaktaumatölt c.Fjórgangur d.Fimmgangur e.Gæðingaskeið
6 .2.flokkur
a.Tölt b.Slaktaumatölt c.Fjórgangur d.Fimmgangur e.Gæðingaskeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH