Viðrar vel til æfinga
Þeir eru ófáir knaparnir sem nýta þennan fyrsta alvöru góðviðrisdag á árinu til æfinga.
Eflaust hafa námsmenn tekið sér frí frá próflestri og aðrir skellt sér í „sólarfrí“ frá vinnu því í kringum höfuðborgarsvæðið má sjá fjölmarga á útreiðum. Á Hvammsvelli voru nokkrir keppendur í Reykjavíkurmeistaramótinu að prófa völlinn á gæðingum sínum, fá leiðsögn og skerpa á síðustu smáatriðum æfinga sinna en mótið hefst á morgun.
Það er þó ekki spáð neinu dýrindis keppnisveðri. Samkvæmt Veðurstofu er spáð áframhaldandi hlýindum en gert er ráð fyrir að hann muni rigna á keppendur alla keppnisdagana. Vonum að Veðurstofan sé ekki sannspá í þetta sinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH