„Engar áminningar“
„Rétt er að það komi fram að engir knapar hafa fengið áminningu vegna áverkaskýrsla eftir kynbótasýningar“..
sagði Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur aðspurður um orðróm þess efnis á netinu“.
„Hinsvegar var þeim 10-12 knöpum sem tengdust flestum áverkum sent bréf í október og í því sjá þeir allar upplýsingar um áverkaskýrslur ársins en ekki þó nöfn annarra þairra er þeim tengjast. Þeir sjá svart á hvítu sína stöðu í þessum skýrslum og eru bréfin send út til að þeir geti þá velt ástæðum fyrir sér og brugðist við sjái þeir að það sé hægt.
Þessar aðgerðir eru hugsaðar sem fyrirbyggjandi aðgerðir geti knapar haft áhrif í rétta átt, það er ekki verið að refsa neinum. Rétt er að geta þess svona í lokin að þessi gögn eru öll sjáanleg í Worldfeng, en hafi þurft að gera áverkaskýrslu eftir sýningu einhvers grips að lokinni sýningu er það skráð í WF. Allur fréttaflutningur um áminningar er einfaldlega rangur“ sagði Guðlaugur að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH