Nýútkomið blað Eiðfaxa
Í nýútkomnum Eiðfaxa er eins og vanalega mikið af áhugaverðu efni um hrossarækt, reiðmennsku og mannlífið í hestamennskunni…
Meðal efnis er ítarleg úttekt á áhrifum vægisbreytinga í kynbótadómum unnin af Óðni Erni Jóhannssyni. Það er viðtal við Magnús Einarsson um hrossarækt í Kjarnholtum og áhrif hennar víðar.
Í blaðinu er mikið myndskreitt grein um Íslandsmót 2010 í Hafnarfirði
Þá er í þessu blaði mjög fróðleg grein um íslensk stangamél og notkun þeirra. Höfundur er Guðmar Þór Pétursson.
Stutta grein um vað yfir Hvítá er að finna meðal efnis, og fleira og fleira.
Blaðið er nú komið til áskrifenda og fæst í lausasölu í hestavöruverslunum um land allt og á afgreiðslustöðvum N1.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH