Geldingaholtsmenn- og hestar drjúgir í Svíþjóð
Mökkvi från Åleby er hæst dæmda kynbótahross ársins í Íslandshestaheiminum. Hann var sýndur á kynbótasýningu í Romme í Svíþjóð í lok apríl og hlaut 8,54 í aðaleinkunn. Knapi Sigfús Sigfússon frá Vestra-Geldingaholti í Gnúpverjahreppi. Hann er búsettur ytra.
Mökkvi er öflugur að gerð og kostum, með 9,0 fyrir fótagerð og hófa, skeið og vilja. Hann er með 8,34 fyrir sköpulag og 8,68 fyrir kosti. Hann er undan Hrafnfaxa frá Vestra-Geldingaholti og Hnátu frá Varmalæk, sem er undan Borgfjörð frá Hvanneyri. Eigandi og ræktandi er Petra Lindberg.
Tugir hrossa eru þegar komnir með fyrstu verðlaun á kynbótasýningum í útlöndum það sem af er ári. Allar upplýsingar um einstakar sýningar má nálgast á www.worldfengur.com.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH