Annað vetrarmót Smára
Minnum á annað vetrarmót Smára sem fram fer núna á laugardaginn 27. Mars kl 13:00 ( sjá önnur tíma setning en verið hefur)
Keppt verður í pollaflokki – 9 ára og yngri
barnaflokki – 10-13 ára
unglingaflokki – 14-17 ára
ungmennaflokki 18-21 árs
fullorðinsflokki 1 og 2 flokki
unghrossaflokki hross fædd 2005 og 2006
Skráningargjald er í alla flokka nema pollaflokk og barnaflokk, 1000 kr á skráningu sem greiðist á staðnum.
Skráning er á staðnum og hefst kl 11:30. Skráningu lýkur 12:50
Riðið verður í þessari röð:
- Pollaflokkur
- Unghrossaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Fullorðinsflokkur 2
- Fullorðinsflokkur 1
Keppendur eru beðnir um að mæta í flíkum sem hægt er að næla númerin á bakið á þeim.
Kaffisala í Reiðhöllinni.
Hvetjum sem flesta til að koma og vera með eða bara koma og horfa á og hitta fólkið!
Vonumst til að sjá sem flesta
Mótanefnd Smára
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH