Hrossaræktarfundir í vikunni
Í vikunni verða haldnir eftirtaldir fundir um málefni hrossaræktarinnar. Fundirnir hefjast kl. 20:30.
Þriðjudaginn 2. mars. Svaðastaðahöllinni, Sauðárkróki.
Miðvikudaginn 3. mars. Hlíðarbæ, Eyjafirði.
Fimmtudaginn 4. mars. Sjálfstæðissalnum, Blönduósi.
Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH