Fet
Á vef Viðskiptablaðsins birtist frétt um gjaldþrotaskipti félagsins Háttar ehf. En Karl Wernersson keypti hrossaræktarbúið Fet á Suðurlandi í gegnum Hátt ehf í apríl árið 2007 fyrir 525 milljónir. Fet rak búskap á jörðunum Fet, Lindabæ og Syðri-Rauðalæk á yfir 700 hekturum. Með kaupunum fylgdi fjöldi hrossa, íbúðarhús, nokkur hesthús, hlaða og starfsmannahús.
Í frétt Viðskiptablaðsins um málið kemur fram að skiptastjóri þrotabús félagsins Háttar ehf vill að fjárfestirinn Karl Wernersson skilli hrossaræktarbúinu Feti og gerir kröfu um að greiðslu úr Hátti til Karls upp á 50 milljónir króna verði rift.
Tekist er um málið í Héraðsdómi Reykjavíkur. Lögmaður Karls heldur því hins vegar fram að skjólstæðingur sinn eigi kröfu á þrotabúið og vildi að riftunarmálunum báðum yrði vísað frá dómi. Á það var ekki fallist og vísaði dómari í málinu frávísunarkröfunni frá í morgun. Aðalmeðferð í málinu er ekki komin á dagskrá en líklegt er að hún fari fram í byrjun næsta árs.
Hægt er sjá frétt viðskiptablaðsins hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH