Farsælu samstarfi lokið

  • 25. maí 2014
  • Fréttir
Skilja sáttir eftir farsælt starf

 

Kristjón L. Kristjánsson (Krilli) hefur að eigin ósk látið af störfum sem bústjóri á hrossaræktarbúinu á Kvistum í Holta- og Landsveit. 

 Eiðfaxi hafði samband við Gunther Weber eiganda Kvista sem sagði að Krilli hafi tjáð honum fyrir nokkru síðan að hann hefði áhuga á að breyta til og því óskað eftir að hafinn yrði leit að nýjum manni til að taka við búrekstri á Kvistum.  Nú væri sá aðili fundinn og þeir félagar Gunther og Kristjón því gengið frá starfslokum Kristjóns sem bústjóra á Kvistum. 

Á þeim 14 árum sem Kristjón hefur starfað sem bústjóri á Kvistum hefur hann borið ábyrgð á uppbyggingu hrossaræktarinnar þar og komið búinu í fremstu röð hrossaræktarbúa landsins.  Fjölmörg þekkt hross hafa á undaförnum árum komið úr hrossaræktinni á Kvistum og má þar nefna afburða stóðhestana Óm frá Kvistum og Oliver frá Kvistum.  Þá hafa fjölmargir aðrir þekktir keppnishestar komið úr hrossaræktinni á Kvistum.

Að lokum sagði Gunther Weber: „Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Krilla fyrir frábært starf hans á Kvistum við uppbyggingu aðstöðunnar og hrossaræktarinnar á Kvistum.  Krilli hefur sýnt og sannað að hann er snjall hrossaræktandi og með einstakt auga til að greina gæðingsefni framtíðarinnar.  Nú skilja leiðir eftir farsælt og langt samstarf.  Ég óska Krilla alls hins besta í framtíðinni og við skiljum sem góðir vinir.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link